Héraðsdómur staðfestir stjórnvaldssekt Skífunnar 16. október 2007 17:09 MYND/Pjetur
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað þeim kröfum Árdegis að fella úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um að félagið skyldi greiða 65 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna samkeppnisbrota. Fram kemur í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu að í júní fyrra hafi eftirlitið komist að því að Skífan, forveri Árdegis, hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að gera samninga við Hagkaup um sölu á hljómdiskum og tölvuleikjum, annars vegar á árinu 2003 og hins vegar á árinu 2004. Samingarnir hefðu falið í sér einkakaup og samkeppnishamlandi afslætti. Með samningunum hefðu keppinautar Skífunnar verið nánast útilokaðir frá viðskiptum við Hagkaup sem er stór seljandi á m.a. hljómdiskum. Var um ítrekunarbrot að ræða hjá Skífunni að mati Samkeppniseftirlitsins og var félagið því sektað um 65 milljónir króna. Þeirri ákvörðun áfrýjaði félagið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem staðfesti ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Við þetta sættu Árdegismenn sig ekki og leituðu til dómstóla til þess að fá úr því skorið hvort ákvörðun áfrýjunarnefndar væri réttmæt. Héraðsdómur Reykjavíkur felldi svo úrskurð í dag þar sem fallist var á að að samkeppnislög hefðu verið brotin og að álögð sekt væri í samræmi við alvarleg brot málsins.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Fleiri fréttir Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Sjá meira