Samþykkt á fundi OR að fallast á tillögu borgarráðs 2. nóvember 2007 15:33
Samþykkt var einróma á fundi stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur í dag að fallast á tillögu borgarráðs að falla frá hinum umdeilda samruna Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy sem samþykktur var á stjórnarfundi Orkuveitunnar þann 3. október. Enn fremur var Bryndísi Hlöðversdóttur, stjórnarformanni Orkuveitunnar, falið að undbúa eigendafund hjá Okruveitunni ásamt því að ræða við aðra hluthafa REI um málið, þar meðal Geysir Green Energy. Á Bryndís að leggja fram tillögur þar að lútandi fyrir næsta stjórnarfund OR. Í bókun stjórnar Orkuveitunnar kemur fram að hún falli frá samþykki sínu sem veitt var hinum umdeilda fundi er varðar það: a) að OR kaupi nýtt hlutafé í REI að fjárhæð kr. 2.600.000.000, á genginu 1,0 sem staðgreiðist fyrir 1. febrúar 2008. b) að Orkuveita Reykjavíkur samþykki að hlutir félagsins í Hitaveitu Suðurnesja hf., að bókfærðu verði kr. 8.674.611.-, verði lagðir inn sem hlutafé í REI á genginu 2,7 og fái hlutafé í REI að nafnvirði kr. 3.209.276 sem undanfari samruna REI og Geysis Green Energy. c) að Orkuveita Reykjavíkur samþykki samning við REI um aðgang að tækniþjónustu o.fl., dags. 3. okt. sl. d) að Orkuveita Reykjavíkur samþykki samruna REI við Geysi Green Energy hf. skv. fyrirliggjandi samningi um breytingar á eignarhaldi REI og samruna REI við Geysi Green Energy . Áskilur stjórn OR sér rétt til að taka nýjar ákvarðanir varðandi ofangreind málefni í samræmi við síðari ákvarðanir stjórnarinnar og væntanlegs eigendafundar OR, að fengnum tillögum stjórnarformanns OR. Þá beinir stjórn Orkuveitunnar því til stjórnarmanna í REI að ekki verði teknar neinar ákvarðanir í stjórn REI á grundvelli fundarsamþykktar frá 3. október nema að fengnu fyrirfram samþykki stjórnar OR, en boðaður framhaldsaðalfundur REI verður haldinn 17. nóvember. Enn fremur er stefnt að því að áður en einstakar ákvarðanir eru teknar um framhald REI-málsins að bera slíkar tillögur undir aukafund eigenda í OR. Jafnframt er stjórnarformanni falið að hafa samráð við fulltrúa eigenda um það hvenær af slíkum fundi geti orðið. Til þess að tryggja hagsmuni OR gagnvart öðrum hluthöfum í REI samþykkir stjórn OR að OR sé heimilt að kaupa nýtt hlutafé í REI að fjárhæð kr. 2.600.000.000 á genginu 1.0 sem staðgreiðist fyrir 1. febrúar 2008, eða fyrr, sbr. áskriftarsamning sem dagsettur er 6. okt. 2007. Ekki hætt við útrás Aðspurð segist Bryndís ánægð með niðurstöðuna og að viðræður við Geysi Green Energy og aðra hluthafa í REI leggist vel í sig. „Það er að mörgu að huga og út frá fyrri atvikum þessa máls er mikilvægt að vanda vel til verka og að ákvarðanir séu teknar að vel athugðu máli," segir Bryndís. Bryndís ítrekar að það að hverfa frá samrunanum við Geysi Green Energy feli ekki í sér að Orkuveitan ætli að hætta í útrás eða leggja niður starfsemi REI. Hins vegar þurfi að taka næstu skref með hagsmuni Orkuveitunnar að leiðarljósi.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira