Innlent

Með reiðhjólalager í hjólageymslunni

Úr myndasafni
Úr myndasafni MYND/Rósa

Lögreglan í Grafarvogi fann á dögunum allmikinn hjólalager í hjólageymslu fjölbýlishúss í hverfinu. Var það eftir ábendingu um að hjólum hefði fjölgað óvenju mikið í geymslunni á skömmum tíma.

Í tilkynningu frá lögreglumönnum í Grafarvogi segir að geymslan hafi nánast verið full af reiðhjólum og ungir athafnamenn önnum kafnir við að sýsla við hjólin, breyta og bæta. Þeir sögðust hafa fundið þau víðs vegar um hverfið og tekið þau til handargagns. Þeim var hins vegar sagt að óskilamunun ætti að koma til lögreglu sem síðan reyndi að finna eigendur þeirra. Virtust ungu mennirnir koma af fjöllum við þau tíðindi.

Lögregla í Grafarvogi segir þetta ekki í fyrsta sinni sem hún sinni erindi sem þessu og áréttar við fólk, ekki síst foreldra, að fólki sé ekki heimilt að slá eign sinni á hluti, hjól sem önnur verðmæti, sem það finnur á víðavangi. Það sé alltof algengt að reiðhjólum sé stolið og þau síðan skilin eftir þar sem fólk kann að finna þau og jafnvel slær eign sinni á þau.

„Við sem tökum við tilkynningum um reiðhjólaþjófnaði, frá t.d. börnum sem hafa jafnvel safnað sér fyrir þeim og lagt mikið á sig til að eignast þau, sjáum svekkelsið og vanlíðanina sem þessir þjófnaðir valda þeim sem fyrir þeim verða. Hvetjum við fólk til að hafa samband við lögreglu ef eitthvað vekur grunsemdir þess. Þannig upplýsast oft hin ýmsu mál," segir lögreglan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×