Innlent

Húsnæðisverð lækkar

Hækkunarprósentan á íbúðahúsnæði á höfuðborgarsvæðinu er komin niður í fimm prósent, þegar litið er eitt ár aftur í tímann. Lækkun síðastliðna mánuði er að éta upp hækkunina, sem varð fyrrihluta tímabilsins. Á einum mánuði nemur lækkunin núll komma sjö prósentum, tveimur komma teimur prósentum til þriggja mánaða og 0,9 prósentum til sex mánaða. Þessi þróun sýnir að lækkunin er heldur að herða á sér. Húsnæðisvísitalan núna er rúmlega 306 stig en fór upp í rúm 313 stig í ágústlok í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×