BBC fjallar um ísfirska fegurðarkeppni 2. mars 2007 09:45 Fyrirhuguð fegurðarsamkeppni hefur vakið athygli utan landsteinanna og viðtal við Matthildi var sent út á BBC í gær.
Fyrirhuguð fegurðarsamkeppni á Ísafirði, þar sem aukakíló, hrukkur og húðslit munu teljast keppendum til tekna, hefur vakið athygli utan landsteinanna og fréttir af henni hafa birst á erlendum vefmiðlum. Þegar Fréttablaðið talaði í gær við Matthildi Helgadóttur, einn skipuleggjenda keppninnar, beið útvarpsviðtal við hana útsendingar hjá BBC. „Ég hélt að þetta væri símahrekkur þegar þau hringdu frá BBC. En hún er búin að tala við mig nokkrum sinnum, konan, svo ég er orðin nokkuð viss um að svo sé ekki,“ sagði Matthildur, sem hefur varla haft vinnufrið fyrir fyrirspurnum undanfarna daga. Hún segir athyglina hafa komið skemmtilega á óvart, en sýna greinilega að mikill áhugi sé fyrir málefninu. „Grunnhugmyndin hjá okkur er að sýna fáránleikann í því að keppa í fegurð. Við erum ekki að segja neitt sem hefur ekki verið sagt áður, en kannski á nýjan hátt. Og kannski er jarðvegurinn frjór núna. Tískuheimurinn er meira að segja farinn að spá í að það gæti verið til eitthvað sem heitir of mjótt,“ sagði Matthildur. Athyglin hefur fleiri góðar afleiðingar. „Með meiri umfjöllun vilja fleiri taka þátt, og það er auðveldara að fá styrktaraðila,“ sagði Matthildur. Það þykir aðstandendum keppninnar sérlega ánægjulegt, þar sem allur ágóði mun renna til Sólstafa, nýstofnaðra systursamtaka Stígamóta á Vestfjörðum. „Þetta er mjög þarft málefni og við viljum sýna virðingu okkar í verki,“ sagði Matthildur.
Mest lesið Líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Bíó og sjónvarp „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ Lífið Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Tónlist Fleiri fréttir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Sjá meira