Innlent

Stálu hársnyrtivörum og sokkum

MYND/GÞS

Nokkuð var um innbrot í höfuðborginni í gær. Meðal annars var brotist inn í þrjá bíla og þaðan stolið radarvara, veski og rafgeymi. Þá var brotist inn í fyrirtæki í austurborginni og þar teknar hársnyrtivörur, sokkar og smáræði af skiptimynt.

Samkvæmt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var einnig brotist inn í stigahús í austurborginni og stal þjófurinn þar nokkrum skópörum. Í miðborginni tók karl á miðjum aldri útvarpstæki ófrjálsri hendi úr glugga í húsi. Til hans náðist og var honum gert að skila tækinu aftur á sinn stað.

Þá var skráningarnúmeri stolið af bifreið en ekki er vitað hverjir voru þar á ferð.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×