Vill að Lögmannafélagið taki upp mál Kompáslögmanns 19. september 2007 15:20 Atli Gíslason, lögmaður og alþingismaður. MYND/Róbert
Atli Gíslason, alþingismaður og lögmaður segir að næg næg úrræði séu fyrir hendi hjá Lögmannafélagi Íslands til að grípa inn í mál lögfræðings sem ákærður hefur verið fyrir kynferðisbrot. Í Kompás í gær kom fram að maðurinn sé verjandi annara meintra kynferðisbrotamanna þrátt fyrir að mál hans sjálfs sé í vinnslu. Atli segist telja eðlilegt að lögmannafélagið grípi inn í málið af sjálfsdáðum, ekki þurfi kæra að koma til. Atli vitnar í 2. grein í siðareglum lögmanna þar sem segir að Lögmaður skuli gæta heiðurs lögmannastéttarinnar, jafnt í lögmannsstörfum sínum sem öðrum athöfnum. Atli bendir þó á að mál lögmannsins sé enn í dómsmeðferð og að hann sé saklaus þar til sekt hans sé sönnuð. Hins vegar sé um svo alvarlegar ásakanir að ræða að Atli segist vera þeirrar skoðunar að lögmannafélagið eigi að taka málið upp af sjálfsdáðum. Samkvæmt 14. grein lögmannalaga getur úrskurðarnefnd lögmanna lagt það til við dómsmálaráðherra að réttindi lögmanns verði felld niður tímabundið, eða hann sviptur réttindum séu sakir miklar. „Það eru því klárlega úrræði í þessu máli," segir Atli sem segist vera þeirrar skoðunnar að tímabundin svipting á lögmannsréttindum mannsins sé í spilunum, eins og hann orðar það. „Þessi lögfræðingur ætti reyndar sjálfur að leggja inn réttindi sín á meðan þetta mál er fyrir dómstólum, það er mín skoðun, en ég ítreka að maðurinn er saklaus uns sekt hans er sönnuð.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira