Fleiri láta fjarlægja tattoo 19. september 2007 12:49 Helst eru það nöfn fyrrverandi elskhuga eða maka sem fólk vill fjarlægja. MYND/Getty Images
Fjöldi þeirra sem láta fjarlægja húðflúr hér á landi hefur aukist töluvert síðustu ár og er búist við frekari aukningu á næstu árum. Yfirleitt er laser aðferðum beitt en þær geta verið bæði sársaukafullar, kostnaðarsamar og tímafrekar. Þetta er svipuð þróun og Í Bandaríkjunum þar sem aukningin hefur orðið gífurleg. Rannsókn sem gerð var af félagi húðsjúkdómalækna í Bandaríkjunum leiddi í ljós að af 24 prósentum sem voru með húðflúr, íhuguðu 17 prósent að láta fjarlægja það. Rannsóknin var gerð árið 2004 meðal fólks á aldrinum 18 til 50 ára. Hrönn Guðmundsdóttir hjúkrunarstjóri Laser-lækninga segir að fólk sjái oft á tíðum mjög eftir að setja á sig húðflúr. Í sumum tilfellum jafnvel strax og síðasta stungan hefur verið stungin. „Í dag setja auk þess mörg fyrirtæki þær kröfur að ekki sjáist húðflúr, og þá hafa þeir sem eru með sjáanlegt húðflúr minni möguleika," segir Hrönn. Mest er um að ungt fólk láti fjarlægja tattoo en hópurinn er þó breiður. Nokkuð er um að sjómenn láti fjarlægja húðflúr sem þeir fengu sér í fjarlægri höfn. Þau húðflúr sem flestir láta fjarlægja eru nöfn gamalla elskhuga eða fyrrverandi maka. Nýjasta tækni við að fjarlægja húðflúr er lasergeisli sem ræðst á litarefnið í húðflúrinu og leysir það upp. Sjúklingurinn þarf að mæta nokkrum sinnum með ákveðnu millibili. Birkir Sveinsson húðsjúkdómalæknir segir að mun erfiðara sé að taka húðflúr af en setja það á. Mismunandi laser aðferðir séu notaðar eftir því hvar tattooið er staðsett og hvaða litir séu í því. Grænn og rauður litur séu til dæmis mun erfiðari en svartur og blár og erfitt er að fjarlægja öll húðflúr. Fólk ætti því að hugsa sig vel um áður en það fær sér húðflúr. Þá getur kostnaður við að fjarlægja tattoo orðið ansi hár. Heildarmeðferð er yfirleitt ekki undir sjö skiptum og það verða að líða sex til átta vikur á milli. Það getur tekið allt að 20 skipti að fjarlægja erfiðustu húðflúrin. Fyrir hvert skipti eru greiddar á bilinu 5-20 þúsund krónur. Meðalkostnaður er líklega um 150 þúsund krónur að mati Hrannar. Engin trygging er fyrir því að ekki komi ör eftir aðgerðina, og oft koma ör þegar húðflúrið er gert. Í mörgum tilfellum sést þó aðeins litamunur. Hrönn býst við því að enn frekari aukning verði á því að fólk láti fjarlægja húðflúr á næstu árum. Jafnvel meiri en verið hefur frá opnun Laser-lækninga árið 1999. Tískan hafi verið sú að tattooin séu að stækka; „Manni hryllir við tilhugsunina um stærri húðflúr því það er ekkert grín að eyða þeim."
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira