Innlent

Vilja reka Friðarstofnun Reykjavíkur

Stefán Pálsson er formaður Samtaka herstöðvaandstæðinga
Stefán Pálsson er formaður Samtaka herstöðvaandstæðinga

Samtök hernaðarandstæðinga ætla að bjóða fulltrúum borgarstjórnar til formlegra viðræðna á næstu dögum, með það að markmiði að samtökin taki að sér að reka Friðarstofnun Reykjavíkur. Fyrir tæpu ári tilkynnti Vilhjálmur Þórmundur Vilhjálmsson borgarstjóri að borgaryfirvöld hyggðust stofna Friðarstofnun Reykjavíkur í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Markmið stofnunarinnar yrði að fjalla um friðarmál á alþjóðlegum vettvangi, halda árlega ráðstefnu og bjóða deiluaðilum viðs vegar að úr heiminum til viðræðna hér á landi. Samtökum hernaðarandstæðinga þykir heldur lítið hafa verið gert í málinu síðan þá og vilja leggja sitt af mörkum til að takmarkið náist, segir í tilkynningu frá samtökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×