Þátttakendur í X-Factor vekja athygli 8. febrúar 2007 13:00 Keppnin harðnar í X-Factor
Úrslitakeppnin er komið á fulla ferð og má með sanni segja að X-Factor-æðið sé hafið fyrir alvöru. Það kom mörgum á óvart þegar systkinin Hans Júlíus og Ásdís Rósa Þórðarbörn, sem skipa dúettinn Já, féllu úr keppni í síðasta þætti, sérstaklega í ljósi þess að dómararnir höfði verið á einu máli um og haft sérstaklega á orði í fyrsta þættinum hversu miklir listamenn þau væru og að þau hefðu þá staðið sig einna best af öllum. En af því má draga þann lærdóm að fyrri frammistaða skiptir litlu þegar á hólminn er komið, auk þess sem öllu máli skiptir fyrir áhorfendur að vera virkir og taka þátt í símakosningunni ef þeir vilja hafa bein áhrif á úrslitin og framvinduna í X-Factor. Í samkeppninni milli dómaranna er staðan sú að Ellý og Palli hafa nú bæði misst eitt atriði úr sínum hópum og aðeins Einar stendur eftir með öll sín atriði. Tæpt var það þó því Alan lenti meðal tveggja neðstu atriðanna í síðasta þætti og þurfti á liðsinni Ellýjar að halda - sem valdi að gefa honum annað tækifæri, framyfir dúettinn Já. Pressan er því mikil á hinum geðþekka bandaríska söngvara sem búsettur hefur verið á Íslandi í þrjú ár, að standa sig og endurgjalda Ellý traustið sem hún og Einar bera til hans, ein Einar fullyrti að þar færi hæfileikamaður á heimsmælikvarða. Og sumir keppendur hafa reyndar nú þegar náð athygli víðar en hér á landi. Í vikunni komst það í fréttir að Jógvan hinn færeyski sé að slá rækilega í gegn í heimalandinu og að þar sé farið af stað einskonar Jógvan-æði, í líkingu við Magna-æðið, jafnvel þótt þættirnir séu ekki í sýningum í færeysku sjónvarpi. Færeyingar fylgjast að sögn grannt með gengi síns manns og verður spennandi að sjá hvar sá áhugi endar ef Jógvan kemst lengra og jafnvel alla leið í keppninni ... Hægt og bítandi spyrst það svo út til heimalanda hinna "útlendinganna" í keppninni, Johonnu hinnar sænsku, og Alans hins bandaríska, að landi þeirra sé að brillera í íslenska X-Factornum og verður þá spennandi að fylgjast með hvernig því verður gerð skil í þarlendum fjölmiðlum. Eitt atriði fellur úr keppni í hverjum þætti, allt þar til yfir líkur að eitt stendur eftir sem sigurvegari keppninnar; sá flytjandi sem talinn hefur x-faktorinn eftirsótta. Það sem keppendur þurfa að gera er að syngja sig inn í hjörtu þjóðarinnar, því það er á valdi sjónvarpsáhorfenda að velja þá sem best stóðu sig, með því að greiða þeim atkvæði í símakosningu. Þeir tveir keppendur sem fæst atkvæði fá í símakosningunni þurfa svo að syngja aftur í þættinum til að bjarga lífi sínu og sannfæra dómarana um að þeir eigi skilið að halda áfram. Það kemur því í hlut dómaranna að skera úr um að endanum hver fer heim hverju sinni.
Mest lesið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Menning „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Lífið Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Kveðjustund í ráðhúsinu Lífið Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Lífið Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Lífið Fleiri fréttir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Sjá meira