Vill að ríkið hætti við sölu á hlut sínum í Hitaveitu Suðurnesja 13. júlí 2007 13:01 MYND/GVA
Málefni Hitaveitu Suðurnesja hefur ekki fengið lýðræðislega meðferð hvorki af hálfu Alþingis eða viðkomandi sveitarfélaga að mati Jóns Bjarnasonar, þingmanns Vinstri grænna. Hann segir það aldrei hafa staðið til að Hitaveita Suðurnesja yrði einkavædd þegar málið kom til kasta Alþingis á sínum tíma og krefst þess að ríkið hætti við sölu hlutar síns í hitaveitunni. „Ég tel að eigi að stöðva þetta ferli núna," sagði Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, í samtali við Vísi. „Stjórnvöld eiga að fresta sölunni þangaði til málið hefur fengið rétta meðferð á Alþingi. Ég er mjög ósáttur við feril málsins. " Samkvæmt samkomulagi bæjaryfirvalda í Hafnarfirði, Reykjanesbæ og Grindavík munu sveitarfélagin ekki nýta forkaupsrétt sinn á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja. Hlutur Geysis Green Energy í hitaveitunni verður um 32 prósent. Að mati Jóns stóð aldrei til að hitaveitan yrði einkavædd þegar málið var rætt á Alþingi. Hann segir hins vegar ljóst að með þessu samkomulagi sé einkavæðingaferill hafinn. „Það eru svik við lýðræðið í landinu að troða einkavæðingunnni í gegn með þessum hætti. Kjósendur í þessum sveitarfélögum hefðu aldrei samþykkt þetta fyrir kosningar. Þar auki varðar málið grunnþætti almannaþjónustu í samfélaginu og því ekki einkamál þessara einstöku sveitarfélaga."
Mest lesið Þrjátíu þúsund fengu hærri lífeyri í dag en síðustu mánaðamót Innlent Vill skipta út borgarstjórnarflokknum en halda Hildi inni Innlent Sólveig Anna sé sjálf sek um dyggðaskreytingar Innlent „Kynlífsdúkka“ af ungu barni meðal gagna máls gegn fyrrverandi ráðherra Erlent Tilkynnt um hljóð úr neyðarsendi á flugi yfir Akranes Innlent Nágranni hafði betur og verkstæðið verður ekki endurbyggt Innlent Biðjast ekki afsökunar Innlent Vara við því að Kennedy ógni heilsu landsmanna Erlent Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Innlent Telja Rússa hafa truflað flugvél forseta framkvæmdastjórnar ESB Erlent Fleiri fréttir Leit vegna neyðarsendis frestað Falla frá hluta ákæru vegna tunnumótmælanna Nágranni hafði betur og verkstæðið verður ekki endurbyggt Innkalla ferskan kjúkling frá Matfugli vegna gruns um salmonellu Tilkynnt um hljóð úr neyðarsendi á flugi yfir Akranes Einfaldasta lausnin að bæta kjör geislafræðinga Veitur vara við svikaskilaboðum Áhersla lögð á andlega líðan eldra fólks sem sé lítið rædd Þrjátíu þúsund fengu hærri lífeyri í dag en síðustu mánaðamót Ákærður fyrir að bera sig ítrekað Segir nýtt kerfi stórbæta kjör lífeyrisþega Með á þriðja þúsund pilla í nammipokum Bein útsending: Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi tekur gildi Það sé skammtímalausn að lengja opnunartíma og senda fólk erlendis í geislameðferð Snærós ráðin framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar Sólveig Anna sé sjálf sek um dyggðaskreytingar Með óspektir og réðst á lögreglumann Vill skipta út borgarstjórnarflokknum en halda Hildi inni Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Biðjast ekki afsökunar Ferðamaður tekinn á tvö hundruð kílómetra hraða Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir árekstur við framúrakstur Friðarsúlan „gagnslaus“ og megi alveg eins heita „woke-súlan“ Netþrjótar hirða meira en hálfan milljarð og verktaki bendir á borgina Gamall Volvo stóð í ljósum logum í Breiðholti Varðturnarnir á bak og burt Mikill hugur hjá skógræktarfólki um allt land Fer hörðum orðum um „óveðursskýið“ Jóhann Pál Boðar sumarveður inn í september Google Maps beinir ökumönnum um Krýsuvíkurleiðina vegna villu Sjá meira