Umhverfismál, hagstjórn og nýsköpun hjá Íslandshreyfingunni 22. mars 2007 14:03
Umhverfismál, bætt hagstjórn, betri kjör aldraðra og öryrkja og nýsköpun og jöfnuður eru þau mál sem nýr stjórnmálaflokkur, Íslandshreyfingin - lifandi land, leggur áherslu á. Flokkurinn kynnti stefnu sína í dag í Þjóðmenningarhúsinu. „Ég held að þetta sé í fyrsta sinn þar sem kynnt er stefnuskrá stjórnmálaflokks þar sem áherslan er lögð á að hafa gaman af lífinu," sagði Ómar Ragnarsson, einn aðstandenda framboðsins, í upphafi fundarins. Hann sagði kosningarnar í vor snúast um landið sjálft og að Íslandshreyfingin hefði algjöra sérstöðu því hún væri ein flokka græn í gegn. Margrét Sverrisdóttir, sem einnig kemur að framboðinu, sagði að boðið yrði fram í öllum kjördæmum. Ekki væri búið að skipa á framboðslistan en þegar það yrði gert yrði horft til jafnréttis kynjanna og allra stétta. Ómar sagði enn fremur að hreyfingin ætlaði að halda umhverfismálum í umræðunni alveg fram að kosningum og tryggja að ekki yrði mynduð hrein stóriðjustjórn eftir kosningar. Koma þyrfti í veg fyrir að núverandi stjórnarflokkar kipptu inn Frjálslynda flokknum í ríkisstjórnina. Hann sagði enn fremur að hreyfingin vildi staldra við í stóriðjumálum þar til niðurstöður lægju fyrir í djúpborunarverkefnum svo ekki þyrfti að fórna náttúruperlum eins og Ómar orðaði það. Þá benti Margrét á að flokkurinn vildi auka samkeppni í landbúnaði og styrkja lífræna framleiðslu. Í sjávarútvegi legði flokkurinn mesta áherslu á að smábátar fengju aðgang að krókaveiðum. Fjölmenni var í Þjóðmenningarhúsinu þar sem framboðið var kynnt en þar var einnig kynnt merki þess. Það er rauður, grænn og blár hringur sem á að tákna sjálfbæra þróun í landinu. Bráðabirgðastjórn framboðsins er skipuð sjö mönnum, þar á meðal Ómari sem er formaður, Margréti sem er varaformaður og Jakobi Frímanni Magnússyni.
Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna Erlent „Gamla góða Ísland, bara betra“ Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Erlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Sjá meira