Innlent

Björgunarsveitir aðstoða fleiri rjúpnaskyttur

Björgunarsveitirnar Biskup og Ingunn aðstoðuðu í dag rjúpnaskyttur sem sátu fastar í mikilli aurbleytu við Bláfellsháls. Sveitirnar voru kallaðar út um klukkan tvö í dag en aðgerðum lauk um áttaleytið í kvöld.

Aðstæður voru mjög erfiðar á svæðinu og brotnaði öxull í framhásingu í bifreið björgunarsveitar Ingunnar. Þá hjálpuðu björgunarsveitirnar einnig öðrum veiðimönnum sem höfðu fest sig á svæðinu.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×