Innlent

Reyndi að smygla steralyfjum inn til landsins

Norröna.
Norröna. MYND/MS

Karlmaður var í Héraðsdómi Austurlands í dag gert að greiða 120 þúsund krónur í sekt fyrir að hafa flutt lyf ólöglega til landsins. Þá var manninum einnig gert að greiða 340 þúsund krónur í sakarkostnað.

Maðurinn var tekinn þegar hann kom með ferjunni Norrönu til Seyðisfjarðar frá Færeyjun í janúarmánuði síðastliðnum. Í bifreið mannsins fannst töluvert magn af lyfjum þar á meðal steralyf.

Maðurinn játaði brot sitt og fram kemur í dómsorði að hann hafi ekki áður gerst sekur um brot.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×