Sýknaðir af því að grípa í pung skipsfélaga síns 1. nóvember 2007 17:19
Tveir togarasjómenn voru í dag sýknaðir af því að grípa harkalega í pung skipsfélaga síns með þeim afleiðingum að hann lá sár eftir. Héraðsdómur hafði sakfellt mennina fyrir verknaðinn og dæmt þá í þriggja og tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi en Hæstiréttur koms að þeirri niðurstöðu að sýkna bæri mennina. Frásögn af atburðinum var skráð í dagbók togarans sem mennirnir voru munstraðir á. Þar segir að þann 5. október 2004 hafi maðurinn verið að fara upp stiga af neðsta gangi skipsins þegar ákærðu hafi ráðist á hann og rifið „allhrottalega í kynfæri hans. Eftir þetta hafi hann verið marinn á kynfærum, átt erfitt með þvaglát og verið með mikla verki í pungnum," eins og segir í dómnum. Maðurinn tilkynnti lögreglu hins vegar ekki um málið fyrr en 24.nóvember sama ár og þá hljóðaði sagan á þá leið að hann hafi verið að ganga upp landganginn á skipinu í Fáskrúðsfjarðarhöfn „þegar ákærðu hafi í galsa veist að honum með því að annar hafi gripið í fótinn á honum, en hinn um punginn og dregið hann niður landganginn." Þriðja útgfáfan kom svo við skýrslutöku hjá lögreglu en þá sagði hann annan hinna ákærðu hafa gripið í buxnastreng hans á miðgangi skipsins og að hinn hafi þá gripið í pung hans og togað hann niður stigann. „Hann hafi þá strax fundið sársauka í pungnum, sem hafi bólgnað upp. Eftir þetta hafi skipið látið úr höfn, en hann mest legið fyrir uns skipið kom fjórum til fimm dögum síðar til hafnar í Vestmannaeyjum, en þaðan hafi hann farið með Herjólfi til meginlandsins og flogið samdægurs frá Reykjavík til Akureyrar. Þegar þangað kom hafi hann leitað til læknis." Framburður mannsins í málinu var því augljóslega ekki samhljóða um það hvar eða hvernig atlagan hefði farið fram né hvor hinna ákærðu hefði veitt honum áverkana. Hinir ákærðu neituðu báðir sök í málinu en báru fyrir sig minnisleysi sökum ölvunar. Því þótti ósannað að mennirnir hefðu gerst sekir um verknaðinn. Hæstiréttur finnur einnig að þeim drætti sem varð á málinu í héraði en 14 mánuðir liðu frá þingfestingu og þangað til aðalmeðferð fór fram. Hæstiréttur fann einnig að því að lögregla skuli hafa látið nægja að taka skýrslu af manninum sem sagður var hafa orðið fyrir árásinni í gegnum síma, þrátt fyrir að hann væri eina vitnið í málinu.
Mest lesið Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Innlent Ekið á hjólreiðamann Innlent Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka Innlent Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi Innlent Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Erlent Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Erlent Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Innlent Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Innlent Babb í bátinn enn eina ferðina Innlent „Ég elska þennan flugvöll“ Innlent Fleiri fréttir Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Borgarstjóri fer í saumana á kortafærslunum Fundu snyrtistofuna við húsleit í kjölfar umferðareftirlits Tölvuþrjótar hrella háskólanemendur og Reform rúllar upp kosningum á Englandi Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Versti mögulegi tíminn fyrir netárás Veðurfræðingur spáir fínasta sumri Leikskólagjöld fyrir fulla vistun hækkað um allt að 85 prósent Ekið á hjólreiðamann Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Salómonsdómur í deilu um pinnahælaför í parketi „Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Einn öskrandi og til ama og annar sofandi á gatnamótum Hafa frest til 12. maí til að koma í veg fyrir gagnaleka „Ég elska þennan flugvöll“ „Erfitt að sjá að þetta verði fyrstu kostir, kannski ef að allt fer í hnút“ Svona gekk að flytja vindmyllurnar Babb í bátinn enn eina ferðina „Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í afmælisgjöf“ Tveggja bíla árekstur á Reykjavíkurvegi „Við erum bara að mótmæla“ Fleiri vilja sjá Sönnu sem borgarstjóra en Björgu Milljónum í reiðufé stolið Milljóna þjófnaður úr spilakössum, flóknar meirihlutaviðræður og lóð gróðrarstöðvar til Víkings Bein útsending: Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir „Og nei, Snorri Másson, þú ert ekki fórnarlambið hér“ Kylfingar í Mosó geta farið að dusta rykið af golfdóti sínu Hnökrar í innleiðingu á gjaldfrjálsum strætó fyrir reykvísk ungmenni Sjá meira