50 þúsund krónur í bætur fyrir hlerun 1. nóvember 2007 16:59 MYND/GVA
Hæstiréttur dæmdi í dag íslenska ríkið til að greiða karlmanni 50 þúsund krónur í skaðabætur vegna vegna þess að sími hans var hleraður í tvær vikur í tengslum við bruna á Sauðárkróki fyrir um þremur árum. Einn maður lést í brunanum og var sá sem stefndi ríkinu grunaður um aðild að brunanum og dauða mannsins. Lögregla fékk samkvæmt dómsúrskurði að skoða símtöl mannsins nóttina sem bruninn varð og hlera síma hans í tvær vikur vegna málsins en engin ákæra var gefin út í málinu. Héraðsdómur féllst á það hleranirnar hefðu falið í sér skerðingu á friðhelgi einkalífs mannsins og voru honum því dæmdar 50 þúsund krónur í bætur en hann hafði farið fram á hálfa milljón króna. Í niðurstöðu Hæstaréttar segir að við þær aðstæður að rannsókn á brunaleifum var ekki lokið og talið var að eldhvetjandi efni hefðu verið notuð við íkveikjuna hefði verið réttmætt að athuga símnotkun mannsins í skamman tíma áður en eldur kom upp. Hins vegar þóttu ekki hafa verið fyrir hendi lögmæt skilyrði fyrir símhleruninni, en grunur lögreglu beindist aldrei að því að fleiri gætu verið samsekir þannig að réttlætt gæti hlerun né gat sú aðstaða ein og sér að maðurinn játaði ekki brot þrátt fyrir grunsemdir lögreglu gefið tilefni til aðgerðarinnar. Var því niðurstaða héraðsdóms um greiðslu miskabóta staðfest.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira