Kærður fasteignasali undrast ásakanir Jón Hákon Halldórsson skrifar 1. nóvember 2007 10:21 Erna Valsdóttir undrast ásakanir á hendur sér.
Erna Valsdóttir löggiltur fasteignasali undrast ásakanir Andrésar Pétur Rúnarsson. L 94, félag í eigu Andrésar, hefur kært Ernu til eftirlitsnefndar Félags Fasteignasala. Andrés sakar Ernu um að hafa í heimildarleysi haldið eftir greiðslum upp í ógreiddan reikning, vegna sölu fasteignar og kaupsamnings, sem gerður var fyrir L-94 ehf. Forsaga málsins er sú að Erna seldi iðnaðarhúsnæði að Austurmörk í Hveragerði fyrir einkahlutafélag Andrésar Péturs, L-94 ehf. Við uppgjör þeirrar sölu voru greiddar rúmar 620 þúsund krónur upp í söluþóknun, sem nam rúmum 960 þúsund krónum, en inneign L-94 ehf. nam þá þeirri fjárhæð og vantaði því upp á eftirstöðvar söluþóknunar 340 þúsund krónur. Erna seldi síðan aðra eign fyrir L-94 ehf. við Trönuhraun í Hafnarfirði og tók þar á móti kaupsamningsgreiðslum og gerði upp vanskil vegna fasteignagjalda og fjárnámskröfu á hendur L-94 ehf. sem hvíldu á umræddri eign. Erna greiddi hluta eftirstöðva kaupverðs til L-94 ehf. en hélt eftir jafnvirði áður umgetinnar reikningsskuldar L-94 ehf. samkvæmt viðskiptamannayfirliti Fasteignakaupa ehf. eða rétt rúmar 340 þúsund krónur, þar sem sú fjárhæð var þá enn ógreidd vegna hinnar fyrri sölu. Andrés Pétur mótmælti þessu og sagði að henni væri óheimilt að halda eftir þessum greiðslum þar sem um vörslufé væri að ræða. Erna segir það rangt að hún hafi ekki heimild til að halda eftir af umræddu vörslufé og bendir á reglugerð um fjárvörslureikninga fasteignasala máli sínu til stuðnings. Þar segir að ef fasteignasali eigi fé hjá viðskiptamanni sínum vegna gjaldfallinnar þóknunar eða útlagðs kostnaðar samkvæmt rétt bókfærðri stöðu viðskiptareiknings hans sé honum heimilt að taka þá greiðslu út af fjárvörslureikningi enda sé fullnægt skilyrðum til skuldajöfnuðar. Þá segir Erna það rangt að sala eignarinnar við Austurmörk hafi ekki gengið í gegn. Um eignina hafi verið þinglýst kaupsamningi eins og venja sé og fari um efndir hans samkvæmt samningsskilmálum milli samningsaðila. Kaupandi eignarinnar hafi hins vegar ekki greitt samkvæmt ákvæðum kaupsamningsins og eigi L-94 ehf. eftir að fá hluta kaupverðsins greiddan. Erna segist ekki bera ábyrgð á efndum samningsins og sé það aðila samningsins að ganga eftir efndum, með aðstoð lögmanna, ef nauðsyn krefur. Á meðan vanefndir séu til staðar verði samningsferlinu hins vegar ekki lokið með afsali og endanlegu uppgjöri eins og lög gera ráð fyrir. Samkvæmt upplýsingum blaðamanns frá Frjálsa fjárfestingabankanum hefur ekki enn farið fram nafnabreyting á lánum venga umrædds iðnaðarhúsnæðis við Austurmörk og því virðist það liggja ljóst fyrir að Erna og fasteignasala hennar hafa ekki enn klárað söluna á eigninni.
Tengdar fréttir Fasteignasali kærður fyrir svindl L94 ehf, sem er í eigu athafnamannsins Andrésar Péturs Rúnarssonar, hefur kært Ernu Valsdóttur, löggiltan fasteignasala, hjá fasteignasölunni Fasteignakaup hf. til eftirlitsnefndar Félags fasteignasala. 29. október 2007 12:45 Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira
Fasteignasali kærður fyrir svindl L94 ehf, sem er í eigu athafnamannsins Andrésar Péturs Rúnarssonar, hefur kært Ernu Valsdóttur, löggiltan fasteignasala, hjá fasteignasölunni Fasteignakaup hf. til eftirlitsnefndar Félags fasteignasala. 29. október 2007 12:45