Boðnar 20 milljónir króna í flýtibónus fyrir Ísafjarðarleið 21. mars 2007 18:54
Uppbygging nýs vegar um Tröllatunguheiði, á næstu tveimur árum, styttir leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um fjörutíu kílómetra og mun væntanlega einnig valda því að Ísafjarðarumferðin hættir að fara um Holtavörðuheiði og Hrútafjörð en fer í staðinn að mestu um Bröttubrekku og Búðardal. Nýi vegurinn liggur milli Reykhólasveitar og Steingrímsfjarðar og er um 25 kílómetra langur. Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. september 2009. Tilboð voru opnuð í gær og átti Ingileifur Jónsson lægsta boð, upp á tæpar 662 milljónir króna, sem var 76 prósent af kostnaðaráætlun. Ljóst er að áhrif þessarar vegagerðar verða víðtækari en margur gæti ætlað við fyrstu sýn. Auk þess að efla samskipti milli Stranda og Reykhólasveitar mun nýja leiðin væntanlega skapa Dalamönnum fleiri störf við að þjónusta þá auknu bílaumferð, sem fara mun í gegn hjá þeim. Aðalleiðin milli Reykjavíkur og Ísafjarðar liggur nú um Holtavörðuheiði og Hrútafjörð og er um fimmhundruð kílómetra löng. Við opnun Tröllatunguvegar má gera ráð fyrir að Ísafjarðarumferðin færist að mestu yfir á hann og færi þá um Bröttubrekku, Búðardal og Gilsfjörð, enda er sú leið um 40 kílómetrum styttri. Hólmavík yrði eftir sem áður í vegarsambandi við Ísafjarðarumferðina. Það gæti hins breyst með jarðgöngum sem áformuð eru milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar en þá yrðu sú leið sú allra stysta milli Ísafjarðar og Reykjavíkur.Gulrót eru í boði fyrir verktakann. Takist að opna veginn ári fyrr, eða fyrir 1. september á næsta ári, fær hann tuttugu milljónir króna í flýtibónus.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent Fleiri fréttir Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Sjá meira