Enginn munur á tá og tönn 21. mars 2007 18:55
Ríkið þyrfti að rúmlega fjórfalda fjárframlög til tannheilsu barna til að verja sama hlutfalli til málaflokksins og fyrir hálfum öðrum áratug. Þetta myndi þýða útgjaldaaukningu uppá meira en einn og hálfan milljarð á ári. Dósent í barnatannlækningum segir að engin rök séu fyrir því, í velferðarsamfélagi, að gera greinarmun á tá og tönn. Tannheilsu barna hefur hrakað verulega á síðustu árum og er nú helmingi verri en hjá sænskum börnum. Þetta sýnir ný viðamikil rannsókn. Hún sýnir líka að sterkt samhengi er á milli tekna foreldra og fjölda tannskemmda. Sigurður Rúnar Sæmundsson, dósent í tannlæknadeild, telur þetta endurspeglun á því breytta hugarfari að velta ábyrgð á tannheilsu barna yfir á hvern og einn - og þá skipta tekjur máli. Rannsóknir Sigurðar Rúnars sýna ástæðuna fyrir ört hrakandi tannheilsu barna að hans mati. Þannig var kostnaður ríkisins í tannvernd barna yfir 0.2 % af landsframleiðslu árið 1990 en hefur hríðlækkað síðan. Samkvæmt nýjustu tölum var þetta hlutfall meira en fjórum sinnum lægra eða um 0.05 %. Ef þetta hlutfall væri það sama í dag og árið 1990 væri ríkið ekki að verja rúmum 500 milljónum á ári í barnatannlækningar - heldur tveimur komma tveimur milljörðum. Dósentinn telur engin rök fyrir því að kerfið hér á landi eigi að vera annað en hjá grannþjóðunum þar sem samfélagsleg ábyrgð er tekin á tönnum sem og öðrum líkamspörtum barna. Ef tá brotnar í barni tekur heilbigðiskerfið við - ef tönn brotnar eða skemmist þá er ábyrgðinni velt á einstaklinginn. Enginn munur eigi að vera á tá og tönn í barni.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira