Innlent

Lítill áhugi á að þiggja önnur störf hjá Samherja

Samherji hefur ákveðið að hætta allri skreiðarverkun á Hjalteyri. Ákvörðunin kemur illa niður á stærsta vinnustað Arnarneshrepps, segir oddviti.

Samherji segir í fréttatilkynningu að fyrirtækið neyðist til að loka skreiðaverkuninni vegna fyrirsjáaanlegs samdráttar í kjölfar niðurskurðar á þorskveiðiheimildum. Minni fiskur muni berast á land.

Oddviti Arnarneshrepps segir að ákvörðun Samherja sé áfall fyrir sveitarfélagið, enda hefur þessi gamla síldarverksmiðja sem hýst hefur skreiðina undanfarið, verið stærsti vinnustaður hreppsins.

Starfsmönnunum 11 hefur verið boðin vinna í öðrum deildum innan Samherja en lítill áhugi virðist hjá fólkinu að þiggja þau störf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×