Samherji hættir skreiðavinnslu á Hjalteyri Björn Gíslason skrifar 24. september 2007 13:06 Hreppsnefnd hafði nýverið auglýst nýjar lóðir á Hjalteyri. MYND/KK
Samherji hyggst loka skreiðavinnslu sinni á Hjalteyri við Eyjafjörð og missa á bilinu 8-10 manns vinnuna við það. Samherji hefur verið stærsti vinnuveitandinn í Arnarneshreppi og segir Axel Grettisson, oddviti hreppsins, að starfsmönnum hafi verið boðin vinna á Dalvík og akstur þangað, alla vega í vetur. Hins vegar sé óljóst hvort fólk taki því því margir í hópnum séu orðnir fullorðnir. Aðspurður segir Axel að Samherji hafi gefið þær skýringar á lokuninni að þorskkvóti félagsins hafi minnkað í kjölfar niðurskurðar sjávarútvegsráðherra fyrr á árinu. „Þeir ætla sér að fara að vinna fiskinn þannig að þeir sem fái sem mest fyrir hann," segir Axel. Samherji hefur leigt húsnæði af Arnarneshreppi og á Axel von á að þeim leigusamningi verði sagt upp og hreppurinn verði þannig af þeim tekjum. Hann á von á að fundað verði með fulltrúum Samherja vegna málsins í næstu viku þar sem fjallað verði um leigusamninginn. Verði honum sagt upp muni hreppsnefndin einhenda sér í að leita að atvinnuskapandi starfsemi í húsnæðið. Axel segir tvær fyrirspurnir þegar hafa borist vegna húsnæðisins en hann vill ekki tjá sig frekar um það fyrr en málum Samherja sé lokið. Í Arnarneshreppi búa 176 manns og aðspurður hvort hann óttist fólksflótta segir Axel að hreppsnefndarmenn viti ekki hvað muni gerast. „Við vorum að auglýsa nýjar lóðir á Hjalteyri og það er ljóst að þessi ákvörðun kemur ekki á góðum tímapunkti hvað það varðar," segir Axel.
Mest lesið Eldur kviknaði á Völlunum Innlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fleiri fréttir Eldur kviknaði á Völlunum Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Sjá meira