Leit að Nylon stúlku slegin af 22. ágúst 2007 09:54 Tríóið á Kaupþingstónleikunum MYND/365
Ekkert verður af fyrirhuguðum sjónvarpsþætti Nylon flokksins á Stöð 2 Sirkuss í haust eins og efni stóðu til. Búið var að gera samkomulag um raunveruleikaþætti sem áttu að fjalla um fyrirhugaðar áheyrnarprufur hjá Nylon og upptökur erlendis í kjölfarið. Ástæða þess að hætt er við þættina er sú að stúlkurnar vilja ekki bæta meðlimi við flokkinn eftir vel heppnaða framkomu á Kaupþingstónleikunum á föstudaginn síðastliðinn. Í kjölfarið var ákveðið að Nylon yrði í framtíðinni tríó en ekki kvartett. "Einar Bárðason, umboðsmaður Nylon, hafði samband við mig fyrir helgi og sagði mér að þessi staða gæti komið upp, sagði Pálmi Guðmundsson sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 í samtali við Vísi." "Einar sagði stelpunum líka vel að vera bara þrjár. Hann vildi prófa þríeykið á Kaupþingstóleikunum. Hann hringdi svo aftur í mig á mánudaginn og sagði mér að stelpurnar væru ánægðar með þetta fyrirkomulag og vildu ekki fara af stað með áheyrnarprufurnar," sagði Pálmi. "Í ljósi þess að áheyrnarprufurnar verða ekki er botninn dottinn úr þessu og verður hætt við þættina enda áttu áheyrnarprufurnar að vera þungamiðja þeirra. Einar skildi það vel og er ákvörðunin tekin í sátt," sagði Pálmi Ferlið við gerð þáttanna var komið vel af stað og staðfesti Pálmi að rammasamkomulag hefði náðst fyrir tveimur vikum um framleiðslu þáttanna. Auk þess var vinnsla að einhverju leyti hafin. Til marks um það þá fylgdi upptökuhópur frá SagaFilm stelpunum eftir á Laugardalsvelli á föstudag enda stóð til að þáttaröðin hæfist á Kaupþingstónleikunum en þeir eru stærstu tónleikar sem Nylon hefur komið fram á til þessa. Aðspurður sagði Pálmi málið ekki koma sér illa fyrir Stöð 2. "Við þurfum ekki að kaupa nýtt efni sérstaklega þrátt fyrir að hætt sé við þættina, enda mjög vel byrg af bæði innlendu og erlendu efni," sagði Pálmi.
Mest lesið Krummi kveður pabba sinn Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Joy Harmon er látin Bíó og sjónvarp Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar Sjá meira