Aurskriða féll á veginn við Dalsmynni 30. desember 2007 09:52 Hjálparsveitir hafa átt annríkt í nótt.
Aurskriða féll á veginn við Dalsmynni á Kjalarnesi á tíunda tímanum í morgun. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið en lögreglan er á leið á staðinn til að kanna aðstæður. Mikið annríki hefur verið hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna vatnsleka víðs vegar um borgina. Lekið hefur upp úr niðurföllum og inn af svölum og hafa orðið talsverðar skemmdir á eignum. Mikil úrkoma hefur verið í höfuðborginni í nótt og í morgun í óveðri sem skall í nótt og stendur enn yfir. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð var virkjuð vegna veðurofsans og eru björgunarsveitir Landsbjargar í viðbragðsstöðu. Ekkert ferðaveður er á Suður- og Vesturlandi. Óveður er á nánast öllu Suðurlandi, krapi, hálka og hálkublettir á allflesturm leiðum. Þá er óveður einnig á Vesturlandi. Ófært er um Fróðárheiði og frá Grundarfirði til Ólafsvíkur og þungfært um Vatnaleið og frá Stykkishólmi til Grundarfjarðar. Á Vestfjörðum er þungfært um Klettháls og óveður og þæfingsfærð um Kleifarheiði. Mikill vindur er á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli en þar hefur vindhraði farið yfir 60 metra á sekúndu í stærstu hviðunum. Allt flug innanlands hefur legið niðri í morgun og Herjólfur hefur ekki komist frá Vestmannaeyjum og ferðir Breiðafjarðarferjunnar Baldurs liggja niðri. Þá er flug frá Keflavík í athugun en flugvélar sem komu frá Ameríku í morgun náðu inn til lendingar áður er veðrið skall á. Aðeins ein flugvél hefur flogið frá landinu í morgun. Varað er við stormi eða roki á landinu í dag og mikill rigningu sunnanlands. Spáð er miklum vindi af suðaustri um landið sunnan og vestanvert, hvassast nú fyrir hádegi en vindhraði verður um 23-28 metrar á sekúndu, hvassara í hviðunum. Vestantil lægir lítið eitt síðdegis, en snýst síðan í suð-vestan átt með éljum suðvestalands í kvöld og nótt en eystra gengur vindur niður nærri miðnætti og styttir jafnframt upp.
Mest lesið „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Innlent Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Innlent Fleiri fréttir Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Fjöldi ökumanna á von á kæru Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Þyrlan sækir slasaðan mann á Hestfjall Miðflokksmenn helmingi líklegri til að segja já en Sjálfstæðismenn Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Grindvískir krakkar sneru aftur á völlinn Lögnin komin á land en verður látin kyrr liggja „Önnur ríki með sérþarfir hafa miklu meira vægi í þeirri umræðu“ Bananastappa og hlaupbangsar á matseðlinum í tilraun tvö Sjá meira