Franskur vísindamaður fannst eftir leit á hálendinu 25. nóvember 2007 11:32 Kolvitlaust veður skall á með snjókomu aðfaranótt föstudags. MYND/Friðjón Þorleifsson
Víðtæk leit var gerð í gærkvöldi af frönskum vísindamanni sem fór í ferðalag um hálendið á fimmtudag til að safna GPS landmælingartækjum raunvísindastofnunar Háskóla Íslands. Maðurinn fannst heill á húfi klukkan hálf tvö í nótt í bíl sínum, sem hafði festst í vatni og krapa á miðri Fjallabaksleið. Tilkynning barst um að mannsins væri saknað í eftirmiðdaginn í gær. Björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli, Vík og Kirkjubæjarklaustri, auk minni björgunarsveita af svæðinu leituðu að manninum frá Kirkjubæjarklaustri norður undir Þórisvatn og austur að Kálfafelli. Kolvitlaust veður var á svæðinu aðfaranótt föstudags að sögn Atla Árdal Ólafssonar varðstjóra lögrelgunnar á Hvolsvelli sem stjórnaði aðgerðum. Maðurinn var að sækja átta GPS senda sem staðsettir voru víðsvegar um svæðið. Björgunarsveitir fundu manninn nokkrum metrum áður en komið var að síðasta tækinu. Hann hafði lagt af stað frá Reykjavík rétt fyrir hádegi á fimmtudag og talaði þá í GSM síma við eiginkonu sína. Síðan notaði hann ekki símann og svaraði ekki SMS skilaboðum sem konan sendi honum seinna. Leit reyndist erfið þar sem maðurinn hafði ekki notað kreditkort eða gist á farfuglaheimilum eða hótelum. Ein vísbending hafi þó komið frá bónda sem sagðist hafa séð bíl sem svipaði til bíl mannsins. Þegar maðurinn fannst var bíllinn orðinn olíu- og rafmagnslaus auk þess sem maðurinn var matarlaus og kaldur. Atli segir manninn hafa farið af stað án ferðaáætlunar og ekki virst hafa hugmynd um hvað hann var að fara út í. „Þetta er algjörlega glórulaust að fara svona af stað án ferðaáætlunar og án þess að gera sér grein fyrir aðstæðum."
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira