Ástæðulaus gagnrýni segir fjármálaráðherra 9. mars 2007 18:43
Fjármálaráðherra segir að ekki sé verið að þrengja að starfsemi fjármálafyrirtækja í landinu með nýlegri reglugerð, eins og stjórnarformaður Straums Burðaráss fullyrti í gær. Þá tæki fjármálaráðuneytið ekki við tilskipunum frá Seðlabankastjóra en hlustað væri eftir sjónarmiðum hans rétt eins og sjónarmiðum fjármálafyrirtækjanna. Í fréttum okkar í gær sögðum við frá harðri gagnrýni Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns Straums Burðaráss á reglugerð frá því í síðasta mánuði, sem hann taldi þrengja svo að fjármálafyrirtækjum, að eigendur Straums Burðaráss íhuguðu jafnvel að flytja starfsemina úr landi. Björgólfur sagði stjórnvöld skulda fjármálafyrirtækjunum skýringar. Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir ekki hafa staðið á skýringunum. Vegna mismunandi sjónarmiða um reikningsskil fyrirtækja í erlendum gjaldmiðlum, hefði hann talið rétt að skilgreina starfsrækslugjaldmiðilinn þannig að hann væri sá gjaldmiðill sem væri hlutfallslega stærstur í viðskiptum fyrirtækjanna. Árni M Mathiesen fjármálaráðherra sagði ráðuneytið ekki vera að reyna að koma í veg fyrir að fjármálafyrirtæki taki upp annan gjaldmiðil en krónuna. "Þá hefðum við ekki staðið fyrir því að setja lögin sem heimila þetta. Ég á ekki von á því að þetta hafi teljandi ef nokkur áhrif á fyrirtæki sem hafa áhuga á að gera upp í sínum starfrækslugaldmiðli, sé hann annar en krónan," sagði fjármálaráðherra. Gefið hefur verið í skyn að fjármálaráðuneytið sé að fara eftir óbeinum tilskipunum frá Davíð Oddssyni seðlabankastjóra í þessum efnum. Fjármálaráðherra segir að í ráðuneytinu sé hlustað eftir sjónarmiðum Davíðs eins og forráðamanna fjármálafyrirtækjanna, en ráðuneytið taki sínar eigin ákvarðanir. Eins og staðan er í dag telur fjármálaráðherra ekkert að óttast varðandi áhuga fyrirtækja á að gera upp í öðrum gjaldmiðlum en krónunni, þótt það geti orðið áhyggjuefni undir vissum kringumstæðum.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Inga segir já Innlent Fleiri fréttir Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Sjá meira