Mikill áhugi erlendis á íslensku orkuverkefni 19. júlí 2007 16:34 Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku. MYND/VG
Mikill áhugi er hjá erlendum aðilum að taka þátt í verkefni Íslenskrar Nýorku um notkun vetnis sem orkugjafa í stað olíu eða annarra kolefnisorkugjafa. Framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku segir stefnu íslenskrar stjórnvalda varðandi vistvæna orku eiga mikinn þátt í þessum áhuga. Fjallað var var um verkefnið á vefsíðu bandarísku sjónvarpstöðvarinnar CNN. „Við finnum fyrir miklum áhuga hjá erlendum aðilum," sagði Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku, í samtali við Vísi. „Stefna stjórnvalda varðandi vistvæna orku hefur vakið athygli erlendis. Þá hafa þær tilraunir sem gerðar hafa verið hér landi varðandi vistvæna orku einnig vakið mikla athygli. Íslendingar njóta þess að hafa góðan aðgang að hreinni endurnýjanlegri orku." Von er á tíu vetnisknúnum Toyota Prius bifreiðum hingað til lands næsta haust. Sá innflutningur tengist verkefninu SMART-H2 sem Nýorka og orkufyrirtækin standa að ásamt bandaríska orkufyrirtækinu Quantum Fuel Systems Technologies Worldwide. Bílarnir fara í notkun hjá bílaleigunni Hertz, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjun. Fyrr í þessum mánuði kom hingað til lands vetnisknúinn Benz bifreið frá bílaframleiðandanum DaimlerChrysler. Sá bíll er í sameiginlegri notku Orkuveitunnar og Landsvirkjunar. Fleiri verkefni eru einnig í vinnslu þar á meðal tilraunir með vetnisvélar á hafi úti. Fjallað var um SMART-H2 verkefnið í viðskiptahluta vefsíðu bandarísku sjónvarpstöðvarinnar CNN í dag. Þar er haft eftir Alan P. Niedzwiecki, forstjóra orkufyrirtækisins Quanton Fuel Systems Technologies Worldwide, að fyrirtækið hafi mikla trú á verkefninu og samvinnunni við Íslendinga. „Við erum stoltir yfir því að geta tekið þátt í þessu verkefni," sagði Niedzwiecki.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Sjá meira