Aukið eftirlit skýrir fjölgun hraðakstursbrota 19. júlí 2007 10:01 Hraðaksturbrotum hefur fjölgað um helming á síðustu tveimur árum. MYND/VG
Aukið eftirlit lögreglu og fjölgun bíla á landinu skýrir að mestu leyti mikla fjölgun hraðakstursbrota á undanförnum árum að mati Kristínar B. Þorsteinsdóttur, fræðslufulltrúa hjá Umferðarstofu. Hún segir það einnig áhyggjuefni að ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna hafi aukist eins og raun ber vitni. Hraðakstursbrotum í júnímánuði hefur fjölgað um helming á síðustu tveimur árum. „Það er eins og hraðakstur sé smitandi," sagði Kristín B. Þorsteinsdóttir, fræðslufulltrúi hjá Umferðarstofu, í samtali við Vísi. „Þetta lýsir líka ákveðinni firringu hjá sumum ökumönnum." Alls voru 4.463 hraðakstursbrot skráð hjá lögreglunni í síðastliðnum júnímánuði samkvæmt afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra. Í sama mánuði í fyrra voru þau 3.513 talsins og árið 2005 voru skráð 2.536 hraðakstursbrot í júní. Um 50 fleiri ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í júní miðað sama mánuð árið 2005. Þá voru að meðaltali tveir ökumenn teknir á hverjum degi í síðasta mánuði fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Að sögn Kristínar má skýra aukninguna að mestu leyti með fjölgun bíla á vegum landsins og auknu eftirliti lögreglu. Hún segir fjölgun brota þó áhyggjuefni enda sé hraðakstur og akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna helsta orsök alvarlegra umferðarslysa.
Mest lesið Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Innlent Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Erlent Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Innlent Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Innlent Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Erlent Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Innlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Raðsundlaugarkúkari gengur laus í Oulu Erlent Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Innlent Fleiri fréttir Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slasaðs manns Menningarráðherra skipaði son heilbrigðisráðherra í formannsstörf Vara við svikapóstum í þeirra nafni Bylting framundan en Landspítalinn þurfi að hlaupa hraðar Faðir plokksins kenndi ráðherra að plokka Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Kári Stefánsson í beinni, erfiður hraðbanki og Dönum ekki skemmt Óttuðust um ferðamenn sem sátu fastir í Markarfljóti Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Hraðbankaþjófur játar sök Framlengja gæsluvarðhald yfir leiðbeinandanum um fjórar vikur Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Móðirin áfram í haldi og húsleit á Írlandi Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Losun Íslands jókst á öllum sviðum og langt í land með skuldbindingar Bylting í heilbrigðisþjónustu og áróður Bandaríkjamanna Vilja halda leiðbeinandanum áfram bak við lás og slá Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði Sjá meira