Lager Indriða til sölu 16. febrúar 2007 08:00 Lager Indriða klæðskera, heitins, verður til sölu í Saltfélaginu á næstunni. MYND/Vilhelm
Lager Indriða klæðskera, heitins, er á leið til landsins frá Kaupmannahöfn og verður til sölu í tvær vikur, frá næstkomandi sunnudegi til 3. mars, í Saltfélaginu við Grandagarð 2. Verslun Indriða var áður á Skólavörðustígnum eða þar til hann flutti verslun sína til Kaupmannahafnar í apríl í fyrra. Styrmir Goðason var Indriða innan handar við rekstur verslanana, bæði hér heima og í Danmörku og hann ætlar að vera til staðar í Saltfélaginu þessar tvær vikur. Styrmir segir að lagerinn sé ekki stór en eitthvað er til af öllu. „Eins og áður verður áherslan lögð á að leysa vandamál þeirra sem leggja leið sína til okkar en ég lærði sitthvað um lausnir vandamála af Indriða sjálfum. Kannski reyni ég að pranga inn á fólk ljótum slaufum í leiðinni, það er nóg til af þeim,“ segir Styrmir, sem telur að nokkur hundruð skyrtur og um sextíu jakkaföt verði til sölu. Styrmir segir að töluvert hafi verið um að fólk hafi nálgast hann með fyrirspurnir um hvernig hægt sé að nálgast Indriða-skyrtur og þetta sé viðleitni til að koma til móts við þá. „Það hefur fullt af fólki haft samband og spurt hvort það verði eitthvað meira. Ég býst ekki við því að það verði haldið áfram að framleiða undir hans merkjum. Það eru fáir sem treysta sér í að halda áfram því sem hans fagmennska hafði upp á að bjóða,“ segir hann. Indriði klæðskeri lést í Kaupmannahöfn í lok síðasta árs, langt fyrir aldur fram.
Mest lesið „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Lífið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Lífið Upphitaðir afneitunarafgangar Frosta Gagnrýni Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Lífið „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ Lífið Auður segir skilið við Gímaldið Menning Íslenskt La(m)bubu úr gæru, soðnu kindahorni og fiskaugum Tíska og hönnun Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Áskorun Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Lífið Fleiri fréttir Fordæmir barnaskap „skáeygðra“ sannra Finna „Litlu aumingjarnir þurftu að fara heim að sofa“ „Góður vetrardagur hér er 23 gráður“ Prestarnir sem passa þau sem samfélagið afskrifar eða dæmir Eldsvoðinn í Reykjavík sem líkt var við náttúruhamfarir Ebba Katrín hlaut styrk úr Minningarsjóði Stefaníu Krakkatían: HúbbaBúbba, Eurovision og handbolti Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu „Það eru forréttindi að eiga systur með Downs“ Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Sjá meira