Mikilvægt að leiða mál REI til lykta sem fyrst 23. nóvember 2007 12:30 MYND/GVA „
Þetta er niðurstaðan og ég held að það felist í orðanna hljóðan að í samkomulagi geti báðir aðilar unað við sitt,“ segir Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest, um það samkomulag sem Orkuveita Reykjavíkur hefur gert við hann og Jón Diðrik Jónsson. Í samkomulaginu felst að Orkuveitan kaupi aftur það hlutafé sem Bjarni og Jón Diðrik lögðu inn í REI þegar þeir komu að félaginu í september. Bjarni segir að ekki hafi orðið að því sem lagt var af stað með og því sé eðlilegt að leiðir skilji. „Ég hagnast ekki á þessu og hef ekki áhuga á því," segir Bjarni um samkomulagið. Aðspurður segir Bjarni að mikilvægt sé að leiða til lykta mál REI sem allra fyrst, bæði vegna félagsins sjálfs og viðsemjenda þess. Spurður hvort hann hyggist fjárfesta annars staðar í orkugeiranum segir Bjarni að hann hafi engar ákvarðanir tekið um það. „Þetta er hins vegar mjög áhugaverður geiri og feikilega mörg tækifæri í honum. Það er hægt að nýta vel þá þekkingu sem er fyrir hendi hér á landi," segir Bjarni. Hins vegar hafi hnökrar í ákvarðanaferli eigenda Orkuveitunnar leitt til þeirrar niðurstöðu sem nú er komin. Tækifærin séu þó enn til staðar fyrir fyrirtækið. Bjarni situr sem stjórnarformaður REI fram að áramótum. Aðspurður um verkefnin fram að því segir Bjarni að skilja verði við fyrirtækið á faglegan átt og skila þeirri þekkingu og tengingum sem skapast hafi til þeirra aðila sem taka við.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Sjá meira