Þakmálið ógurlega: Nýr Hebbi í nýju húsi Breki Logason skrifar 23. nóvember 2007 11:41 Herbert Guðmundsson segist ætla að flytja úr hverfinu en hann hefur átt í deilum við nágranna sína undanfarið. „
Ég nenni þessu ekki lengur, ég ætla að selja húsið mitt með þriggja milljón króna afslætti og fara héðan," segir Herbert Guðmundsson sem hefur staðið í stríði við nágranna sína síðan í sumar. „Hvernig er hægt að rukka mig fyrir að gera við þakið mitt 16 árum síðar, hvað er í gangi hérna?," segir Hebbi greinilega mjög æstur yfir frekju, yfirgangi og grimm nágranna sinna eins og hann orðar það. Árið 1991 lét Herbert klæða þakið á raðhúsi sínu í Breiðholtinu en nú vilja nágrannarnir gera hið sama og fá hann til þess að taka þátt í kostnaðinum. Málið hefur ratað í fjölmiðla og nú bíður Herbert eftir fundi með Jóhönnu Sigurðardóttur sem var ráðherra þegar fjöleignarlögin voru sett á sínum tíma. „Þetta er gölluð lög og þetta fólk á bara að láta okkur í friði og gera við sín þök." Herbert segir að hann hafi fengið senda reikninga upp á 50.000 fyrir viðgerðunum sem allir hafi farið í ruslið. Nú er búið að stefna honum og konu hans. „Það er búið að hækka hússjóðinn úr 50.000 í 500.000 er það eðlilegt?," spyr Hebbi sem er búinn að fá sig fullsaddan af nágrönnum sínum. „Við erum að flýja úr þessu húsi vegna frekju, og grimmdar þessa fólks. Þetta er vont fólk. Hver heldurðu að vilji búa með svona fólki?". Herbert segir að þau hjónin séu búin að ákveða að minnka við sig og eru þegar farin að hugsa sér til hreyfings. Hebba er greinilega mikið niðri fyrir og segir málið efni í góðann Reyfara. En þrátt fyrir þetta stríð við nágranna sína gefur Herbert sér tíma í hljóðveri til þess að vinna að nýju plötunni sinni. „Sonur minn sem er 17 ára spilar á hljómborð hjá mér og annar sonurinn er að tromma. Þetta er svona gospel tónlist og guð er að tala við mig. Platan lofar mjög góðu og það má segja að þetta sé nýr Hebbi." Herbert segir þessa plötu vera á hægara tempói en hann hefur áður verið. „Þetta er bara flygill, kassagítar og lögin fá aðeins að anda. Það var einn sem sagði við mig að þetta væri í anda síðustu plötu Johnny Cash," segir Hebbi sem lætur nágrannerjurnar ekki hafa áhrif á sig. „Ég er sterkur karakter og stend á mínu. Platan kemur út þegar hún er tilbúin. Þá verður þetta bara nýr Hebbi í nýju húsi."
Mest lesið „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni Hvað veistu um… One Direction? Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Tónlist Fleiri fréttir Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Fyrsta platan í tuttugu ár Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Sjá meira