Innlent

Hafís óvenju nálægt landinu

Gisinn hafís er óvenju nálægt landi norður af Straumnesi. Þetta kom í ljós í ísflugi Landhelgisgæslunnar í gær.

Ísinn var þá í um það bil 18 sjómílna fjarlægð frá landi og gæti hafa færst eitthvað nær. Hann er þó ekki inni á siglingaleiðum. Hinsvegar er spáð austlægum áttum á svæðinu í dag þannig að hann gæti fjarlægst á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×