Dýr sopi: Þrjátíu daga fangelsi þrátt fyrir bakflæði Breki Logason skrifar 22. nóvember 2007 16:48
Karlmaður var í dag dæmdur í 30 daga fangelsi í Hæstarétti en hann var tekinn fyrir ölvun við akstur í morgunsárið í febrúar á síðasta ári. Maðurinn bar því við að hann þjáðist af vélindarbakflæði og hefði drukkið áfengi kvöldið áður. Eftir að hafa verið stöðvaður í Reykjavík var maðurinn látinn blása í mæli og kom í ljós að 0,74 mg af vínanda í hverjum lítra af útöndurlofti. Hann var því kærður fyrir ölvunarakstur en vefengdi niðurstöðu mælingarinnar þar sem .... vínandamettað loft úr meltingarvegi haft áhrif á mælinguna þar sem hann hafi þjáðst af vélindabakflæði eins og segir í dómnum. Maðurinn sýndi fram á læknisvottorð sem staðfesti þetta. En samkvæmt dómi er þetta ekki í fyrsta skipti sem maðurinn er sakaður um ölvunarakstur. „Samkvæmt sakarvottorði ákærða 22. ágúst 2007 var ákærði sviptur ökurétti í 18 mánuði 2. mars 1998 vegna ölvunaraksturs. Hann var á ný 30. maí 2001 sviptur ökurétti í þrjú ár vegna ölvunaraksturs. Þá gerði hann tvær sáttir hjá lögreglustjóra 29. apríl 2002 vegna sviptingaraksturs. Honum var 11. nóvember 2002 gerð sekt vegna aksturs sviptur ökurétti. Hann var dæmdur 10. apríl 2003 í fangelsi í einn mánuð vegna sviptingaraksturs. Loks var hann dæmdur 21. júní 2004 í tveggja mánaða fangelsi skilorðsbundið í eitt ár fyrir fjársvik." Hæstiréttur féllst ekki á bakflæðisrök mannsins og var hann því dæmdur í 30 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt. Einnig þarf hann að greiða 200.000 krónur í málsvarnarlaun og 138.440 krónur í annan sakarkostnað.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira