Innlent

Contalgenræningjar dæmdir í Hæstarétti

Laugarnesapótek
Laugarnesapótek

Hæstiréttur staðfesti í dag fangelsisdóma yfir þremur síbrotamönnum fyrir rán, þjófnað, gripdeild og vörslu fíkniefna.

Alvarlegasta brotið var þegar þeir réðust inn í Laugarnesapótek árið 2005, vopnaðir hníf og sprautu, og kröfðust þess að þeim yfðir afhent allir skammtar sem til væru af lyfinu Contalgen.

Þá voru þeir einnig gripnir á Laugavegi þegar þeir voru að selja vegfarendum armbandsúr sem rænt hafði verið nóttina áður.

Alls fengu mennirnir 28 mánaða fangelsisdóm fyrir brot sín. Allir höfðu þeir áður hlotið fjölda fangelsisdóma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×