Innlent

Símadóni truflaði neyðarlínuna

Lögreglan handtók ölvaðan mann á heimili sínu í Reykjavík í nótt eftir að hann hafði hringt að minnstakosti hundrað sinnum í Neyðarlínuna og borið þar upp ýmis erindi.

Þótt menn þar á bæ áttuðu sig á að ekki væri allt með felldu og rykju ekki upp til handa og fóta, truflaði þetta starfssemina. Hringingarnar voru raktar heim til mannsins, sem var ekki á þeim buxunum að hætta að hringja.

Maðurinn var handtekinn og gistir fangageymslu. Hann á yfir höfði sér háar sektir fyrir að hafa reynt að villa fyrir lögreglu og björgunarmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×