Innlent

Hjálpsemi vina og nágranna verið ómetanleg

Bóndinn á Stærra Árskógi segir að hvatning og hjálpsemi vina og nágranna hafi reynst honum ómetanleg. Stuðningur fólksins hafi bjargað honum frá því að gefast upp.

Her sjálfboðaliða vinnur nú að hreinsunarstörfum á Stærra Árskógi, býlinu í Dalvíkurbyggð, sem brann síðastliðinn laugardag. Þar brunnu 1000 fermetrar af útihúsum og hátt í 200 nautgripir.

Guðmundur Geir Jónnsson mátti þola að horfa á nautgripi sína og ævistarf brenna upp til agna á örskotsstundu. Þegar eyðileggingin blasti við hugleiddi hann að hætta búskap. En honum hefur snúist hugur.

Það er erfitt fyrir Guðmund að rifja upp brunann. Dýrin sem brunnu inni voru vinir hans. En hann segir að liðið sé liðið og mestu skipti nú að horfa fram en ekki aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×