Innlent

Erlendum ferðamönnum fjölgar um 15 prósent milli ára

MYND/Anton Brink

Erlendum ferðamönnum sem koma til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll fjölgaði um rúmlega 15 prósent á fyrstu tíu mánuðum þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Þetta leiða tölur Ferðamálastofu í ljós.

Í frétt frá stofunni kemur fram að alls hafi um 413 þúsund manns komið til landsins um Keflavíkurflugvöll á fyrstu tíu mánuðum ársins. Þegar aðeins er horft til októbermánaðar fjölgaði ferðamönnum um 6,5 prósent á milli ára.

Ferðamönnum fjölgar frá flestum löndum nema Bandaríkjunum og Japan og bent er á að ferðamannatímabilið sé að lengjast með fjölgun gesta á vor- og haustmánuðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×