MSN-perri dæmdur í skilorðsbundið fangelsi 21. nóvember 2007 15:20 MYND/E.Ól
Karlmaður á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa sært blygðurnarsemi 17 ára pilts með því að klæmast við hann á MSN-spjallrásinni í september og október í fyrra. Maðurinn var ákærður fyrir bæði kynferðisbrot og brot á barnaverndarlögum enda var drengurinn enn þá barn þegar spallið átti sér stað. Samkvæmt ákæru lýsti maðurinn vilja sínum til að hafa mök við drenginn og með hvaða hætti hann vildi hafa þau. Það var móðir drengsins sem leitaði til yfirvalda vegna málsins og benti á að drengurinn hefði þekkt ákærða frá unga aldri og verið tengdur honum fjölskylduböndum. Taldi móðirin að maðurinn væri alvarlega veikur og jafnvel væri hætta á að önnur börn gætu orðið fórnarlömb hans. Maðurinn viðurkenndi fyrir dómi að hafa skrifað það sem fram kom í MSN-spjalli hans við drenginn en útprentun af samskiptunum var lögð fyrir dóminn. Segir í dómnum að ummæli mannsins í umrædd skipti hafi verið í alla staði ófyrirleitin og mjög gróf. Enginn vafi sé á því að þær lýsingar sem maðurin hefði viðhaft í samskiptum sínum við drenginn hefðu sært blygðunarsemi drengsins. Þá hefði maðurinn fengið kynferðislega fullnægju við þessi samskipti. Var maðurinn því sakfelldur fyrir brotin. Hann hafði ekki komist í kast við lögin áður og var tekið tillit til þess við ákvörðun refsingar. Auk tveggja mánaða skilorðsbundins fangelsis var hann dæmdur til að greiða drengnum 200 þúsund krónur í skaðabætur.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Fleiri fréttir Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu E. coli fannst í neysluvatni á Borgarfirði eystra Popúlismi í aðdraganda þjóðaratkvæðis og hvalkjöt í töfluformi Sjá meira