Innlent

Lagt til að 24 ára reglan verði afnumin

Paul Nikolov, varaþingmaður Vinstri - grænna og fyrsti innflytjandinn sem tekur sæti á þingi, mælti í dag á Alþingi fyrir frumvarpi að breytingum á lögum um réttarstöðu útlendinga.

Frumvarpið flytur hann ásamt fimm öðrum þingmönnum. Í frumvarpinu er meðal annars lagt til að hin svokallaða 24 ára regla verði afnumin en hún felur í sér að erlendur maki á aldrinum 18-24 ára geti ekki fengið dvalarleyfi hér á landi. Þá er lagt til í frumvarpinu að tímabundin atvinnuleyfi verði afhent útlendingi sjálfum í stað atvinnurekenda eins og nú tíðkast. Með þessu á að styrkja réttarstöðu útlendinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×