Innlent

Kaupmáttur eykst um tæp þrjú prósent

Launavísitalan hefur hækkað um 8,1 prósent síðastliðna tólf mánuði samkvæmt vef Hagstofu Íslands. Þegar tekið er mið af verðbólgu síðustu tólf mánaða, sem reyndist 5,2 prósent við síðustu mælingar, hefur kaupmáttur aukist um 2,9 prósent á síðustu tólf mánuðum. Launavístialan í október 2007 reyndist 324,6 stig og hækkaði um 0,5 prósent frá fyrri mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×