Innlent

Þrjár milljónir í neyðaraðstoð til Bangladess

MYND/AFP

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, hefur ákveðið að veita 50 þúsund Bandaríkjadali, rúmar þrjár milljónir íslenskar krónur til neyðaraðstoðar í Bangladess. Peningarnir renna til Matvælaáætlunar Sameinuðu Þjóðanna. Að minnsta kosti 3100 létust þegar fellibylurinn Sidr gekk yfir landið í síðustu viku og fer tala látinna hækkandi.

„Margra er enn saknað og hundruðir þúsunda hafa yfirgefið heimili sín. Matarbirgðir, búfénaður og uppskera skoluðust burt í óveðrinu og drykkjarvatn mengaðist. Við blasir hungursneyð og að farsóttir breiðist út, en Bangladess er meðal fátækustu ríkja heims," segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

„Matvælaaðstoð SÞ hóf dreifingu matvæla innan við sólarhring eftir að fellibylurinn fór yfir og hefur nú komið matvælum til a.m.k 650 þúsund manns. Nokkuð erfiðlega hefur gengið að koma fólki til aðstoðar á afskekktustu svæðunum og er nú hafin dreifing matvæla úr þyrlum. Fyrirséð er að veita þarf matvælaaðstoð í Bangladess áfram næstu mánuðina og því hafa fulltrúar Matvælaáætlunar SÞ hvatt alþjóðasamfélagið til að bregðast skjótt við og veita fé til neyðarastoðarinnar," segir að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×