Endurreisa þarf húsnæðiskerfið 20. nóvember 2007 14:49 MYND/GVA
Endurreisa þarf húsnæðiskerfið og viðurkenna verður að húsnæðismál eru velferðarmál, sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í utandagskrárumræðu um hækkun vaxta á íbúðalánum á Alþingi í dag.Það var Katrín Jakobsdóttir, varaformaður Vinstri - grænna, sem hóf umræðurnar og benti á að blikur væru á lofti á húsnæðismarkaði. Vextir af íbúðalánum hefðu hækkað um 40 prósent á þremur árum frá því að bankarnir komu inn á íbúðarmarkaðinn. Þá hefði leiguverð á íbúðum hækkað mikið að undanförnu og skortur væri á leiguhúsnæði, bæði á almennum markaði og í félagslega kerfinu.Benti Katrín enn fremur á að vegna vaxtahækkana væri fólk sem áður hefði verið metið upp á 18 milljónir nú metið upp á 13-14 milljónir. Þessi háu vextir á markaði bitnuðu á ungu fólki sem reyndi að koma þaki yfir höfuðið. Spurði hún hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera og hvaða úrbætur á húsnæðismarkaði væru í sjónmáli.Jóhanna Sigurðardóttir benti á að á einhverjum mestu þenslutímum í sögunni hefðu stjónvöld og bankar sameinast um að bjóða hagstæðari lánskjör og því hefði verð á fasteignum hækkað mikið. Sagði Jóhanna að íbúðarhúsnæði hefði hækkað um 140 prósent í verði frá árinu 2000.Þá sagði hún skuldir heimilanna hafa hefur aukist gríðarlega að undanförnu og að yfirdráttalán bankanna hefðu aukist um 30 prósent frá því að bankarnir hefðu komið inn á fasteignamarkað fyrir þremur árum. Á sama tíma hefði verið dregið verulega úr vaxtabótum og húsaleigubótum.Hún sagði átakanlegt að hækkandi vextir af íbúðalánum, sem næmu nú allt að 7,15 prósentum, bitnuðu á þeim sem verst stæðu. Sjö þúsund manns hefðu á síðustu árum reynt að kaupa íbúð en horfið frá þeim áformum.Sagði hún viðfangsefni ríkisstjórnarinnar að snúa þessari þróun við en sagði engar auðveldar lausnir í sjónmáli. Nefnd á vegum ráðuneytisins ynnu að tillögum til þess að bæta stöðu nýrra íbúðakaupenda. Sú nefnd myndi skila tillögum á næstu dögum.Jóhanna sagði það sameiginlegt verkefni ríkisstjórnarinnar, sveitarfélaga og fleiri að ráða bót á vandanum og að endurreisa þyrfti húsnæðiskerfið. Ríkið þyrfti að viðurkenna að húsnæðismál væru velferðarmál.Flestir þeir þingmenn sem tóku til máls í utandagskrárumræðunni sögðu að við þetta yrði ekki unað og bentu margir stjórnarandstæðingar að standa þyrfti vörð um Íbúðalánasjóð.Kom til snarpra deilna á milli þingmanna Framsóknarflokksins og Samfylkingarmanna þar sem Guðni Ágústsson sakaði Jóhönnu meðal annars um að sofa þyrnirrósarsvefni í málinu. Jóhanna benti hins vegar á að framsóknarmenn hefðu verið með húsnæðismálin síðastliðin ár og hefðu skilið húsnæðiskerfið eftir í algjöru þroti.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjá meira