Bílskúrsdeilur í Breiðholti 20. nóvember 2007 14:39 Æsufell 2 er hluti af húsunum þar sem nú er deilt um kostnað við nýjar bílskúrshurðir. „
Ég vil koma þessu fólki frá sem allra fyrst," segir Sævar Helgason sem býr með sambýliskonu sinni í Æsufelli í Breiðholti. Deilur hafa staðið um kaup á nýjum bílskúrshurðum í Æsufellinu og hefur málið ratað inn á borð lögfræðinga Húseigendafélagsins. Húsfélagið í Æsufelli 2-6 í Breiðholti samþykkti á aðalfundi félagsins að allar íbúðir húsanna myndu bera kostnað af nýjum bílskúrshurðum. Einungis 32 bílskúrar eru í húsunum en íbúðirnar eru um 150 talsins að sögn Sævars. „Það er út í hött að láta alla borga fyrir þessar bílskúrshurðir. Þetta eru 32.000 krónur á hverja einustu íbúð en það er alveg á hreinu að bílskúrshurð er séreign en ekki sameign," segir Sævar sem hefur talað við Húseigendafélagið um málið. „Síðan kannaði ég þetta líka og það kemur í ljós að allir sem eru í hússtjórninni eiga bílskúr. Ég vil koma þessu fólki frá sem allra fyrst." Húseigendafélagið kannaðist við málið þegar Vísir leitaði til félagsins. Í upplýsingum frá þeim kemur fram að bílskúr sé séreign þeirra sem þá eiga en séu þó bundnir af útliti, þá þurfi að mála í takt við húsið o.s.frv. Málið er inni á borði lögmanna félagsins en lögin eru skýr að mati þeirra. Í lögum um fjöleignarhús segir í 5.gr lið númer 6 : "Hurðir sem skilja séreign frá sameign, svo og svalahurðir, en húsfélag hefur ákvörðunarvald um gerð og útlit." Kærunefnd fjöleignarhúsamála hefur einnig tekið fyrir mál þar sem deilt var um hvort bílskúr væri séreign eða sameign. Í máli nr 1/2004 segir meðal annars í úrskurði kærunefndar: "Samkvæmt 10. tölulið 5. gr. fjöleignarhúsalaga nr. 26/1994 telst bílskúr á lóð húss, sem þinglýstar heimildir segja séreign, falla undir séreign fjöleignarhúss." Bílskúrarnir í Æsufelli 2-6 eru innbyggðir í húsin og því er á reiki hvort að lögin nái yfir þá líkt og þau virðast gera um bílskúra sem standa einir á lóð húss. Það er fyrirtækið Eignaumsjón sem fer með málefni húsfélagsins við Æsufell 2-6. „Aðalfundur húsfélagsins samþykkti að fara út í þessar framkvæmdir og við það er rétt að standa. Þarna hefur vissulega verið starfrækt mjög metnaðarfullt húsfélag sem hefur lagt áherslu á gott samræmi í útliti hússins," segir Daníel Árnason framkvæmdarstjóri Eignaumsjónar um málið.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira