Segir Svandísi hafa verið með gjörtapað mál 20. nóvember 2007 12:08
Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, var fyrirfram með gjörtapað mál á hendur Orkuveitu Reykjavíkur að mati Daggar Pálsdóttur, hæstaréttarlögmanns og varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún segir ljóst að Svandís hafi aldrei haft lögvarða hagsmuni af því að fá dóm í málinu. Gengið var frá sátt í máli Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa Vinstri grænna, á hendur Orkuveitu Reykjavíkur fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Í sáttinni felst að Orkuveitan viðurkenni að eigendafundur 3. október, þar sem samruni Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energyar samþykktur hafi verið ólögmætur. Í staðinn féll Svandís frá kröfu sinni um að ákvarðanir sem teknar voru á fundinum verði dæmdar ógildar. Ennfremur samþykkti Orkuveitan að greiða málskostnað Svandísar í málinu. Dögg Pálsdóttir, hæstaréttarlögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir þessa sátt á heimasíðu sinni. Þar segir hún ljóst að frá upphafi hafi Svandís verið með gjörtapað mál. Segir hún að Svandís hafi knúið fram sáttina enda hafi hún ekki haft lögvarða hagsmuni af því að fá dóm í málinu. Ennfremur segir Dögg það óvenjulegt að Orkuveitan greiði málskostnað Svandísar. Ragnar H. Hall, lögmaður Svandísar, gaf lítið fyrir gagnrýni Daggar í samtali við Fréttastofu. Sagði hann Dögg ekki hafa komið nálægt málinu sjálfu og því ekki í þeirri stöðu að gagnrýna það.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Hjón skildu fimm ára dreng eftir í bíl: Málið á borði breskra yfirvalda Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Loka brúnni yfir Borgarfjörð í tvær nætur Um sextán þúsund greitt atkvæði utan kjörfundar Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Sjá meira