Reglum um kaupleyfi á skotvopnum ekki fylgt 15. nóvember 2007 12:19
Alvanalegt er að kaupleyfum á skotvopnum sé faxað til lögregluembættis til samþykktar þrátt fyrir að reglur kveði skýrt á um að kaupandi fari sjálfur til lögreglu með umsóknina og framvísi þar skilríkjum. Maðurinn sem réð öðrum bana á Sæbraut í sumar keypti vopnið sem hann notaði í verslun í Reykjavík. Eins og greint hefur verð frá í fréttum Stöðvar 2 þá framvísaði hann leyfi vinar síns, fyllti út kaupumsókn sem verslunin faxaði síðan til lögreglustjóra til samþykktar. Samkvæmt reglugerð um sölu skotvopna segir að kaupandi skuli sjálfur fara með umsókn um kaupheimild á lögreglustöð til samþykktar hvar hann þarf að framvísa skotleyfi sínu og skilríkjum. Lögregla gefur síðan heimild til kaupanna í þríriti. Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi sagði móðir mannsins sem myrtur var á Sæbraut lögreglu og skotvopnasala hafa gert mistök. Þá sagðist hún ekki vita hvort svona tilvik hafi hent áður að menn fái að kaupa vopn án þess að hafa til þess leyfi. Fréttastofa hafði samband við verslanir í morgun sem selja skotvopn. Þar fengust þær upplýsingar að alvanalegt sé að umsóknum um kaupleyfi sé faxað til lögreglu til samþykktar. Í þeim tilvikum gefur lögregla út heimild en sendir síðan hina raunverulegu kaupheimild til verslunarinnar og kaupandans nokkrum dögum seinna. Er þetta gert til að liðka fyrir afgreiðslu á skotvopnum að því er verslunarmenn segja. Kaupandi þarf samt sem áður að framvísa skotleyfi sínu í versluninni en á því er mynd af viðkomandi. Lögregla treystir því á að viðkomandi verslun sannreyni að kaupandi sé einnig leyfishafi. Maðurinn sem framdi voðaverkið á Sæbraut framvísaði eins og fyrr segir skotleyfi vinar síns. Hans kvaðst vera að kaupa gjöf handa honum á þeim forsendum og faxaði verslunin kaupleyfisumsókn til lögreglu.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Allt gert til að stöðva birtinguna Sjá meira