Innlent

Reglum um kaupleyfi á skotvopnum ekki fylgt

Alvanalegt er að kaupleyfum á skotvopnum sé faxað til lögregluembættis til samþykktar þrátt fyrir að reglur kveði skýrt á um að kaupandi fari sjálfur til lögreglu með umsóknina og framvísi þar skilríkjum.

Maðurinn sem réð öðrum bana á Sæbraut í sumar keypti vopnið sem hann notaði í verslun í Reykjavík. Eins og greint hefur verð frá í fréttum Stöðvar 2 þá framvísaði hann leyfi vinar síns, fyllti út kaupumsókn sem verslunin faxaði síðan til lögreglustjóra til samþykktar.

Samkvæmt reglugerð um sölu skotvopna segir að kaupandi skuli sjálfur fara með umsókn um kaupheimild á lögreglustöð til samþykktar hvar hann þarf að framvísa skotleyfi sínu og skilríkjum. Lögregla gefur síðan heimild til kaupanna í þríriti.

Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi sagði móðir mannsins sem myrtur var á Sæbraut lögreglu og skotvopnasala hafa gert mistök. Þá sagðist hún ekki vita hvort svona tilvik hafi hent áður að menn fái að kaupa vopn án þess að hafa til þess leyfi.

Fréttastofa hafði samband við verslanir í morgun sem selja skotvopn. Þar fengust þær upplýsingar að alvanalegt sé að umsóknum um kaupleyfi sé faxað til lögreglu til samþykktar. Í þeim tilvikum gefur lögregla út heimild en sendir síðan hina raunverulegu kaupheimild til verslunarinnar og kaupandans nokkrum dögum seinna. Er þetta gert til að liðka fyrir afgreiðslu á skotvopnum að því er verslunarmenn segja.

Kaupandi þarf samt sem áður að framvísa skotleyfi sínu í versluninni en á því er mynd af viðkomandi. Lögregla treystir því á að viðkomandi verslun sannreyni að kaupandi sé einnig leyfishafi. Maðurinn sem framdi voðaverkið á Sæbraut framvísaði eins og fyrr segir skotleyfi vinar síns. Hans kvaðst vera að kaupa gjöf handa honum á þeim forsendum og faxaði verslunin kaupleyfisumsókn til lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×