Vilja að Neytendastofa skoði skilmála Kaupþings 13. nóvember 2007 10:12 MYND/Hilmar Þór
Neytendasamtökin hafa leitað til Neytendastofu og beðið hana að skoða hvort Kaupþingi sé heimilt að neita íbúðakaupendum um að yfirtaka áhvílandi íbúðarlán nema þau verði á sömu vöxtum og eru á nýjum lánum. Fram kemur á heimasíðu samtakanna að þau hafi þegar sent Kaupþingi bréf vegna málsins og fengið þau svör að samkvæmt lánssamning sé bankanum heimilt að gera þetta. Vilja Neytendasamtökin að kannað verði hvort víkja beri slíkum samningsskilmálum til hliðar en samkvæmt samningalögum er það hægt ef skilmálar eru ósanngjarnir gagnvart neytendum. Minna samtökin á að með þessari ákvörðun sé verið að túlka samningsskilmála með nýjum og takmarkandi hætti og sé það í litlu samræmi við yfirlýsingar fjármálafyrirtækja þegar þau hófu að veita íbúðalán. Jafnframt hvetja Neytendasamtökin til þess að kannað verði hvort aðrir lánveitendur séu með svipaða skilmála eða túlkun á þeim og Kaupþing ætlar nú að taka upp. Neytendasamtökin leggja áherslu á að hér sé um að ræða eina álöguna enn á neytendur af hálfu lánveitenda sem geri kjör þeirra umtalvert verri en þau eru í dag. Ljóst sé að eftir slíkar breytingar þurfi lántakendur í vaxandi mæli að greiða uppgreiðslugjald vegna lána en það gjald segja Neytendasamtökin ekkert annað en skattlagningu á neytendur. Það sé sambærilegt við stimpilgjaldið sem stjórnvöld hafi nú lofað að fella niður. „Neytendasamtökin vara fjármálafyrirtæki við því að breyta einhliða skilmálum sínum eða túlkun þeirra á þeim ef það er gert með íþyngjandi hætti fyrir neytendur eins og um er að ræða í þessu tilviki. Jafnframt telja Neytendasamtökin eðlilegt að fjármálafyrirtæki tilkynni viðskiptavinum sínum með ótvíræðum hætti allar breytingar á skilmálum og túlkun fyrirtækjanna á þeim," segir í ályktun Neytendasamtakanna vegna málsins.
Mest lesið „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Innlent Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt Innlent Útlit fyrir hríðarbyl á Suðurlandi Veður Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Innlent „Alveg hræðilegt ástand“ Innlent Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Innlent „Ég vil bara að þetta sé sanngjarnt. Að komið sé eins fram við alla“ Erlent Fleiri fréttir Dregur líklega úr svifryksmengun seint í dag Skoða að ná Lúðvík upp áður en sprungan verður fyllt „Maður eiginlega skammast sín eftir á að hafa verið stressaður“ Grunaður fíkniefnasali stöðvaður fyrir að tala í síma Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Sjá meira