Innlent

Vilja að Neytendastofa skoði skilmála Kaupþings

MYND/Hilmar Þór

Neytendasamtökin hafa leitað til Neytendastofu og beðið hana að skoða hvort Kaupþingi sé heimilt að neita íbúðakaupendum um að yfirtaka áhvílandi íbúðarlán nema þau verði á sömu vöxtum og eru á nýjum lánum.

Fram kemur á heimasíðu samtakanna að þau hafi þegar sent Kaupþingi bréf vegna málsins og fengið þau svör að samkvæmt lánssamning sé bankanum heimilt að gera þetta. Vilja Neytendasamtökin að kannað verði hvort víkja beri slíkum samningsskilmálum til hliðar en samkvæmt samningalögum er það hægt ef skilmálar eru ósanngjarnir gagnvart neytendum.

Minna samtökin á að með þessari ákvörðun sé verið að túlka samningsskilmála með nýjum og takmarkandi hætti og sé það í litlu samræmi við yfirlýsingar fjármálafyrirtækja þegar þau hófu að veita íbúðalán. Jafnframt hvetja Neytendasamtökin til þess að kannað verði hvort aðrir lánveitendur séu með svipaða skilmála eða túlkun á þeim og Kaupþing ætlar nú að taka upp.

Neytendasamtökin leggja áherslu á að hér sé um að ræða eina álöguna enn á neytendur af hálfu lánveitenda sem geri kjör þeirra umtalvert verri en þau eru í dag. Ljóst sé að eftir slíkar breytingar þurfi lántakendur í vaxandi mæli að greiða uppgreiðslugjald vegna lána en það gjald segja Neytendasamtökin ekkert annað en skattlagningu á neytendur. Það sé sambærilegt við stimpilgjaldið sem stjórnvöld hafi nú lofað að fella niður.

„Neytendasamtökin vara fjármálafyrirtæki við því að breyta einhliða skilmálum sínum eða túlkun þeirra á þeim ef það er gert með íþyngjandi hætti fyrir neytendur eins og um er að ræða í þessu tilviki. Jafnframt telja Neytendasamtökin eðlilegt að fjármálafyrirtæki tilkynni viðskiptavinum sínum með ótvíræðum hætti allar breytingar á skilmálum og túlkun fyrirtækjanna á þeim," segir í ályktun Neytendasamtakanna vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×