Dæmd fyrir að smygla mjög hreinu kókaíni 9. nóvember 2007 13:37
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í 20 mánaða fangelsi og tvær konur í eins árs fangelsi hvora fyrir að hafa reynt að smygla inn í landið nærri sjö hundruð grömmum af mjög hreinu kókaíni frá Hollandi í febrúar á þessu ári. Konurnar voru gripnar við tollaeftirlit á Keflavíkurflugvelli og reyndust efnin bæði innanklæða á þeim og innvortis.Við yfirheyrslur vísaði önnur konan á manninn og var hann handtekinn. Maðurinn viðurkenndi að hafa ætlað að flytja efnin inn en það hefði verið fyrir annan mann sem hann nafngreindi ekki. Þá sagðist hann enn fremur hafa ætlað að selja hluta af efnunum sjálfur. Hann mun hafa fengið stúlkurnar til þess að vera burðardýr og var þeim lofað 400 þúsund krónum fyrir að smygla efnunum. Dómarinn leit svo á að þau hefðu saman staðið að innflutningnum en að maðurinn hefði skipulagt hann í því skyni að selja efnin.Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess hversu mikið magn var að ræða og hversu sterkt það var. Fram kemur í dómnum að það hafi verið 80 prósent sterkur kókaínbasi og því hefði mátt drýgja efnin töluvert. Var það til refsiþyngingar.Horft var til þess að önnur stúlkan hafði sagt til mannsins og þá var einnig horft til þess að hvorug kvennanna átti sakaferil að baki. Maðurinn var hins vegar á skilorði og var tekið tillit til þess. Þá þótti dómnum alvarlegt að maðurinn hefði reynt að hylja slóð sína með því að kaupa burðardýr til smyglsins og þá hefði hann villt á sér heimildir í samskiptum sínum við konurnar.Til frádráttar dómunum yfir fólkinu var gæsluvarðhald sem það sætti í febrúar vegna málsins. Þá voru þremenningarnir dæmdir til að greiða samtals um eina og hálfa milljón í málsvarnarlaun auk sakarkostnaðar upp á rúmar 230 þúsund krónur.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira