Flugmálastjórn segir ásakanir slökkviliðsmanna rangar 6. nóvember 2007 22:44 MYND/Heiða
Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ásakanir þær sem komi fram í ályktun fulltrúaráðs Landssambands slökkviliðsmanna séu rangar. Ekki hafi verið dregið úr öryggiskröfum á flugvellinum og þvert á móti hafi viðbúnaður við hreinsun og hálkuvarnir á flugbrautum verið aukinn. Þá er bent á að engar kvartanir hafi borist frá flugrekendum eða flugmönnum sem gefi tilefni til ásakana á borð við þær sem slökkviliðsmenn hafi haft uppi. „Keflavíkurflugvöllur er starfræktur með starfsleyfi Flugmálastjórnar Íslands sem setur flugöryggisstaðla, samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðlegum skuldbindingum, og hefur eftirlit með að þeim sé framfylgt," segir í yfirlýsingunni. „Flugvöllurinn er sem fyrr skilgreindur samkvæmt staðli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar nr. 9 um björgunar- og slökkvilið sem tekur mið af umferð og gerð flugvéla sem um flugvöllinn fara. Þar er kveðið á um viðbrögð við slysi með ákveðnu lágmarksmagni slökkviefna og þremur slökkvibifreiðum. Ekki er kveðið á um fjölda slökkviliðsmanna. Í slökkviliðinu eru fjórar þrettán manna vaktir sem þýðir að ávallt eru að lágmarki tíu slökkviliðsmenn við störf á hverri vakt auk símamanns," segir einnig og því bætt við að þetta sé ívið meiri viðbúnaður en gerist og gengur á svipuðum flugvöllum í Evrópu. Þá er bent á að reksturinn hafi breyst töluvert frá því völlurinn tilheyrði varnarliðinu. Brunavarnir á varnarliðssvæðinu hafi færst undir hatt Brunavarna Suðurnesja og herflugvélarnar séu allar horfnar á brott. Þrátt fyrir þetta hafi engum slökkviliðsmanni verið sagt upp. Sömu sögu er að segja um flugvallarþjónustudeild sem sjái um hálkuvarnir og hreinsun á flugbrautunum og raunar hafi verið fjölgað um einn á vakt frá því sem var þegar varnarliðið sá um þessi mál. Flugmálastjórnin bendir einnig á að flugvellir af samsvarandi stærð og með svipaða eða meiri flugumferð en er á Keflavíkurflugvelli séu með færri menn á vakt en gerist í Keflavík.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Fleiri fréttir „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Sjá meira