Innlent

Flugmálastjórn segir ásakanir slökkviliðsmanna rangar

MYND/Heiða

Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að ásakanir þær sem komi fram í ályktun fulltrúaráðs Landssambands slökkviliðsmanna séu rangar. Ekki hafi verið dregið úr öryggiskröfum á flugvellinum og þvert á móti hafi viðbúnaður við hreinsun og hálkuvarnir á flugbrautum verið aukinn.

Þá er bent á að engar kvartanir hafi borist frá flugrekendum eða flugmönnum sem gefi tilefni til ásakana á borð við þær sem slökkviliðsmenn hafi haft uppi.

„Keflavíkurflugvöllur er starfræktur með starfsleyfi Flugmálastjórnar Íslands sem setur flugöryggisstaðla, samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðlegum skuldbindingum, og hefur eftirlit með að þeim sé framfylgt," segir í yfirlýsingunni.

„Flugvöllurinn er sem fyrr skilgreindur samkvæmt staðli Alþjóðaflugmálastofnunarinnar nr. 9 um björgunar- og slökkvilið sem tekur mið af umferð og gerð flugvéla sem um flugvöllinn fara. Þar er kveðið á um viðbrögð við slysi með ákveðnu lágmarksmagni slökkviefna og þremur slökkvibifreiðum. Ekki er kveðið á um fjölda slökkviliðsmanna. Í slökkviliðinu eru fjórar þrettán manna vaktir sem þýðir að ávallt eru að lágmarki tíu slökkviliðsmenn við störf á hverri vakt auk símamanns," segir einnig og því bætt við að þetta sé ívið meiri viðbúnaður en gerist og gengur á svipuðum flugvöllum í Evrópu.

Þá er bent á að reksturinn hafi breyst töluvert frá því völlurinn tilheyrði varnarliðinu. Brunavarnir á varnarliðssvæðinu hafi færst undir hatt Brunavarna Suðurnesja og herflugvélarnar séu allar horfnar á brott. Þrátt fyrir þetta hafi engum slökkviliðsmanni verið sagt upp. Sömu sögu er að segja um flugvallarþjónustudeild sem sjái um hálkuvarnir og hreinsun á flugbrautunum og raunar hafi verið fjölgað um einn á vakt frá því sem var þegar varnarliðið sá um þessi mál.

Flugmálastjórnin bendir einnig á að flugvellir af samsvarandi stærð og með svipaða eða meiri flugumferð en er á Keflavíkurflugvelli séu með færri menn á vakt en gerist í Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×